
Þorsteinn frá Hamri skáld og Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, verða gestir í Kiljunni í kvöld.
Þorsteinn segir frá skáldskap sínum og ljóðabókinni Hvert orð er atvik, en hún kom út nú fyrir jólin.
Vilhjálmur ræðir bókina Farsælt líf, réttlátt samfélag, hún fjallar um ýmsar meginkenningar siðfræðinnar og er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Fjallað verður um skáldið og furðufuglinn Edgar Allan Poe, en 19. janúar voru liðin 200 ár frá fæðingu þessa meistara hrollvekjunnar.
Kolbrún og Páll fjalla um Bréf til föðurins eftir Franz Kafka og bók sem nefnist Morðin í Betlehem, en þessi spennusaga sem er eftir Matt Rees veitir merkilega innsýn inn í palestínskt samfélag og ítök öfgahópa sem halda samfélaginu í heljargreipum.
Bragi segir frá því þegar hann fór í sveit, fékk blóðeitrun og heyrði undurfallegt lag einna fyrstur manna.