Ketill Sigurjónsson heldur úti svokölluðu Orkubloggi þar sem oft birtast fróðlegar greinar um orkumál og ýmislegt því tengt. Síðustu daga hefur hann birt tvær greinar um olíulindir á Drekasvæðinu sem eru allrar athygli verðar.
Sú fyrri heitir Æpandi bjartsýni.
Og sú seinni nefnist Bakkafjarðar soldánninn.
Það er ýmislegt á reiki í þessum málum. Heyrst hafa spár um að þarna sé að finna 10 milljarða tunna af olíu, eða tvo milljarða tunna eða að kannski finnist ekki neitt sem hægt er að vinna – Færeyingar frændur okkar hafa verið að leita að olíu í mörg ár.
Ketill skrifar:
„Enga fjárans svartsýni! Þessir tveir milljarðar olíutunna eru alveg örugglega þarna. Og kannski finnast ekki bara 2 milljarðar tunna á Drekanum – heldur 10 milljarðar tunna. Rétt eins og hann Terje Hagevang hjá Sagex segir. Og svo finnst ennþá meira á Bergrisanum og Gamminum. Og þá verður Ísland með 25 milljarða tunna af olíu og gasi í undirdjúpunum og olíuframleiðslu upp á 4 milljón tunnur á dag. Það er í reynd framtíðarsýnin sem álykta má af spádómum Sagex. Og þess vegna er iðnaðarráðuneytið væntanlega farið að hringja niður í fjármálaráðuneyti, til að undirbúa stofnun íslenska olíusjóðsins. Sem verður einn sá öflugasti í heimi.
Því miður verður Orkubloggið að klykkja út með því, að þessar spár eru allar algjört rugl. Það eru vissar vísbendingar um að olía og/eða gas kunni að finnast á Drekasvæðinu. Ef svo fer, veit enginn hversu mikið það magn verður. Að nefna 2 milljarða tunna eða 10 milljarða tunna er bara skot í myrkri. Þó sínu meira kæruleysi að skjóta á 10 milljarða tunna en 2 milljarða.
Eitt er aftur á móti öruggt. Olía verður ekki unnin á Drekasvæðinu meðan verðið á olíutunnunni er undir 60-80 dollurum. Einfaldlega vegna þess að break-even í djúpvinnslunni er í kringum 70 dollarana (ca +-10 dollarar). Í dag er olíuverðið… 35 dollarar á Nymex. Er þetta í alvöru rétti tíminn að bjóða út leit á Drekasvæðinu? Tæplega.“
Á meðfylgjandi mynd frá Orkustofnun má sjá hvar Drekasvæðið er.