
Augu fólks fara að beinast að landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem verður haldinn í lok mánaðarins.
Framsókn átti nokkuð dirfskufullan leik um helgina þegar Sigmundur Davíð var kosinn formaður. Það breytir vissulega ásýnd flokksins. Svo á eftir að koma í ljós hvernig úr rætist.
Mál margra er að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi líka að sýna dirfsku á landsfundi sínum. Það dugi ekki bara að klappa upp forystuna og hita upp aftur gamlar tillögur um einkavæðingu.
Heldur þurfi að koma fram viti bornar tillögur um endurreisn íslensks þjóðfélags, efnahagsmál, sjávarútveginn og Evrópu.
Og svo er líka spurning um forystuna. Er kannski tímabært að hún verði endurnýjuð á fundinum? Að Geir Haarde dragi sig einfaldlega í hlé?
Annars segir genetískur sjálfstæðismaður, Benedikt Jóhannesson, þetta allt í pistli sem birtist á vefnum Heimi.