fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Raunverulegir peningar?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 14. janúar 2009 23:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vegna fréttar um bróður emírsins af Katar og meint kaup hans á hlut í Kaupþingi er ástæða til að rifja upp grein eftir Jón Þórisson sem birtist hér á vefnum 9. desember.

Þar stóð meðal annars:

“Enn er ekki kominn kaupandi að Kaupþingi í Lúx, en á undanförnum vikum hafa borist fréttir af áhuga Líbýumanna á bankanum og hefur nafn Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, verið nefnt í þessu samhengi.

Það er ekkert leyndarmál að Kaupþing var í ágætum tengslum í Austurlöndum áður en bankinn fór í þrot. Þess er skemmst að minnast að á síðustu metrunum fyrir hrunið keypti hans hátign, sheik Mohammed Bin Khalifa Al-Thani, sem er bróðir Emirsins í Katar, 5% hlut í Kaupþingi fyrir um 194 milljónir evra, og varð þar með þriðji stærsti hluthafinn í bankanum. Fyrirtæki Al Thani sem stofnað var í tilefni þessara viðskipta heitir Q Iceland Finance ehf. og er í eigu Q Iceland Holding ehf. sem er eignarhaldsfélag Al- Thani (afsakið, hans hátignar Al-Thani).

Q Iceland Holding ehf, sem ber kennitöluna 560408-1370, hefur lögheimili að Efstaleiti 5 í Reykjavík og deilir því heimilsfangi með Logos lögmönnum og fleiri fyrirtækjum, m.a. 11 fyrirtækjum sem bera nafnið ELL49, Ell 154 og svo framvegis.

Q Iceland Finance ehf, sem ber kennitöluna 510708-0240, er hinsvegar til heimilis að Suðuðurlandsbraut 18 og deilir því heimilisfangi með ýmsum kunnulegum fyrirtækjum svo sem FS7 ehf, Gift fjárfestingafélag ehf, Egla hf, AB 101, AB 124, AB 179, AB180, AB 25, AB 88, Á bleiku Skýi ehf (kvikmyndaframleiðsluarmur Baugs), Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga að ógleymdu “Félagi áhugamanna tölvuendurskoðenda” – en ekki er vitað hvað þetta síðastnefnda fyrirtæki sýslar með. Sjá www.rsk.is en þar má finna margt skondið og skemmtilegt!

Voru raunverulegir peningar í spilinu?

Í ljósi þess að kaup Al-Thani í Kaupþingi áttu sér stað síðari hluta septembermánaðar, nokkrum dögum fyrir hrun bankanna, má velta upp þeirri spurningu, hvort raunverulegir fjármunir hafi verið í spilinu í þessum viðskiptum, eða hvort kaupin hafi verið hluti af “hringekjuleik “ bankans, þ.e. að peningarnir hafi komið frá Kaupþingi sjálfu og verið liður í þeim blekkingarleik sem var í gangi með bréf bankans?”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur