fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Er þeim treystandi fyrir fjölmiðlafyrirtæki?

Egill Helgason
Sunnudaginn 11. janúar 2009 10:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Brynjólfsson, fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Séð & heyrt, skrifar þessa grein.

— — —

Það fer um mann að sjá í hvaða stöðu fjölmiðlar landsins eru komnir. Allir skuldsettir upp í rjáfur og varla til leigubílapeningar á Mogganum og spurning hvenær verður lokað fyrir símann þar á bæ. Í vikunni birtist frétt um að Jón Ásgeir Jóhannesson hefði sagt sig úr stjórn 365 Miðla eða Rauðsólar eða hvað það nú heitir fyrirtækið sem á alla fjölmiðlana hans. Í hans stað sest Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir eiginkona hans í stjórnina en þar er fyrir á fleti Einar Þór Sverrisson lögmaður Jóns. Þannig að það eru hæg heimatökin ef svo má segja. Sýnir þetta glöggt hvernig hægt er að leppa alls konar gerninga ef engar eru reglurnar sem meina það.

Í ljósi þessa langar mig til að birta bréfkorn sem Einar Þór Sverrisson sendi okkur á Séð og Heyrt um miðjan apríl 2003.

Það er svohljóðandi:

Jón Ásgeir Jóhannesson, kt. 270168-4509, Laufásvegi 69, Reykjavík hefur óskað eftir því að undirritaður héraðsdómslögmaður geri kröfu um leiðréttingu í tímaritinu Séð og heyrt vegna “fréttar” sem birtist í 15. tbl. þess 2003, sem kom út í gær. Í áðurnefndu tbl. tímaritsins birtist með flennifyrirsögn á forsíðu þess.

“Jón Ásgeir hjá Baugi: KEYPTI 19 MILLJÓN KRÓNA BENZ”

Innar í blaðinu er síðan einhvers konar umfjöllun um bifreiðina og að því er best verður séð er fellanlegt þak bifreiðarinnar merkilegast í huga blaðamannsins. Að lokum er umbjóðandi minn síðan settur í samhengi við einn mesta “töffara” kvikmyndasögunnar og sagt að hann sé eins og hann, þegar hann aki um göturnar á “glæsikerrunni sinni”.

Ljóst er að þessi frétt er í engu frábrugðin öðrum “fréttum” eða “ekki fréttum,” sem Séð og Heyrt bíður þjóðinni upp á í hverri viku. Tilgangsleysi þessarar “fréttar” er jafn mikið og tilgangsleysi flestra annarra “frétta” í blaðinu.

Það sem skilur hins vegar þessa “frétt” blaðsins frá öðrum er að hún er ekki rétt. Staðreyndin er sú, að sá aðili sem skrifaði fréttina, (hér er tekið út nafn blaðamanns), hefur ekki gætt lágmarksskyldu hvers blaðamanns að kanna áreiðanleika þess sem hann sem blaðamaður ber á borð. Bifreiðin DG-778 er ekki eign Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Fyrir umbjóðanda minn er það með öllu óþolandi að framleiddar séu um hann “fréttir”, sem eru ekki réttar og þær síðan birtar sem uppsláttur á forsíðu Séð og heyrt. Ljóst er að “fréttir” sem þessar eru til þess fallnar að skapa ákveðna ímynd um persónur sem e.t.v. sumir telja að sé eftirsóknarverð, en aðrir ekki. Umbjóðandi minn fellur í seinni flokkinn. Alvarlegast er síðan þegar verið er að búa til þess konar ímynd af fólki í þessu tilfelli umbjóðanda mínum, með því að spyrða hann saman við veraldlega hluti, sem hann á ekki og hefur ekki átt.

Með vísan til 6. gr. siðareglna Blaðamannafélags Íslands er þess hér með krafist að Séð og heyrt birti leiðréttingu þessarar “fréttar” í næsta tölublaði sínu.

Verði ekki orðið við því mun málið verða kært til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands, þar sem ljóst er að um er að ræða brot á 3. gr. siðareglna þess félags.

Þess er ennfremur óskað að tímaritið hætti að flytja “fréttir” af einkalífi umbjóðanda míns, nema í þeim tilvikum þar sem hann kemur fram með einhverjum hætti á opinberum vettvangi. Áberandi aðilar í hverju þjóðfélagi, hvort sem það er vegna atvinnu eða einhvers annars eiga ótvíræðan rétt á að ekki séð verið að flytja um þá ímyndarskapandi “fréttir” um það sem þeir aðhafast í sínu einkalífi og eru til þess fallnar að gefa lesendum röng skilaboð um það sem viðkomandi aðilar standa fyrir í lífi sínu. Slíkar “fréttir” stappa nærri því að vera meiðandi fyrir æru og friðhelgi, sem þegnar samfélagsins njóta með óumdeildum hætti.

Virðingarfyllst

Einar Þór Sverrisson, hdl.

Þetta bréf frá lögmanninum finnst mér dálítið merkilegt plagg í ljósi þess að nú situr Einar Þór og ráðskast með valdamikla fjölmiðla. Á þessum tíma þóttist maðurinn hafa betra vit en við á því hvað væru fréttir og hvað ekki fréttir. Bréfið er líka merkileg heimild vegna þess að það lýsir svo ljóslega áhyggjum Jóns Ásgeirs af ímyndarsmíð en hann hafði lítil tök á því að stjórna henni í Séð og Heyrt á meðan við Kristján Þorvaldsson sátum þar sem ritstjórar.

Til gamans má síðan geta þess að strax í næsta hefti birtum við sjálfsagða leiðréttingu á  fréttinni og þar kom m.a. fram að Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, þáverandi sambýliskona JÁJ væri eigandi lúxusbílsins. Jón Ásgeir fékk hann sem sagt bara lánaðan til að skreppa í Aktu Taktu þegar hann langaði í hamborgara.

Og víkur þá sögunni að Ingibjargar þætti Pálmadóttur.

Eftir mikið strandhögg útrásarvíkinga í Danmörku urðu danskir fjölmiðlamenn afar áhugasamir um hvaðan allt það fé kæmi sem íslenskir viðskiptajöfrar hefðu á milli handa til að kaupa það sem hugurinn girntist í Kóngsins Köbenhavn.  Í kjölfarið sendi danska ríkissjónvarpið fréttamenn hingað til afla efnis. Þetta var síðla árs 2005. Þeir vildu m.a. tala við mig vegna fréttarinnar um snekkjuna Thee Viking í Flórída og fleiri frétta um auðmenn Íslands sem við höfðum birt í blaðinu. Ég varð góðfúslega við því og sýndi þeim hinar ýmsu forsíður og umfjallanir enda var þetta gósentími fyrir blað eins og Séð og Heyrt, nóg að gerast í flottheitum, alls kyns veislum, athöfnum og fjárfestingum sem þessir pótintátar voru að fást við. Dönsku blaðamennirnir spurðu m.a. hvort ég sem Íslendingur styddi útrásina?

Ég svaraði því til að mér þætti þetta brölt allt frekar athyglisvert og vonandi gengi þetta bara allt upp hjá þeim. Þrátt fyrir allan glamúrinn væru þetta fjarska duglegir strákar og snjallir í viðskiptum.

Ég held samt að þau ummæli hafi lent í úrklippinu hjá DR og ekki verið birt í þættinum.

Eftir að þátturinn var sýndur hér á landi í íslenska ríkissjónvarpinu birtist eftirfarandi athugasemd í Morgunblaðinu 21. desember 2005 og var hún rituð af Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur.

RÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi á mánudagskvöld danska þáttinn Penge sem hafði fáeinum dögum áður verið sýndur alþjóð í Danmörku. Í þættinum var dregin upp nærmynd af íslensku viðskiptalífi og stjórnendum tveggja fyrirtækja.

Bjarni Brynjólfsson, annar ritstjóri Séð og heyrt, lýsti því yfir í þættinum að hinir svokölluðu nýríku Íslendingar hefðu sig mikið í frammi og reyndu að láta bera á og vísaði þar meðal annars til mín.
Ég vil koma þeirri athugasemd á framfæri við Séð og heyrt að ég kannast ekki við yfirlýsingar ritstjórans. Ég hef reynt að forðast umfjöllun fjölmiðla um mig og mitt einkalíf því ég hef enga þörf fyrir að láta bera á mér né ánægju af því að um mig sé fjallað. Séð og heyrt hefur hins vegar haft ítrekaðan áhuga á einkalífi mínu og minna nánustu og farið langt úr hófi í þeirri umfjöllun.

Hafa skal það sem sannara reynist.”

Ég tel mig ekki hafa það á samviskunni að hafa hundelt Ingibjörgu Pálmadóttur eða hennar nánustu (alls ekki Jón Ásgeir) með óhófsömum eða ósanngjörnum umfjöllunum í Séð og Heyrt. Reyndar sagði ég aldrei að hinir nýríku Íslendingar reyndu að láta bera á sér. Það var alfarið okkur að kenna að það bar á þeim – eða hvað? Og greinilega í hæsta máta óeðlilegt að birta fregn um 19 milljóna lúxuskerru fólksins sem átti bæði Bónus, Hagkaup og 10/11 og þurfti nauðsynlega að hafa líf sitt í friði fyrir almúganum sem þó gat varla verslað við önnur fyrirtæki en þessi. Þessi sama Ingibjörg, sem hafði engan áhuga á “að láta bera á”, sýndi glæsisnekkjuna sína í Boat International á yfir sex síðum í máli og myndum. Það var allt í lagi. Það var í útlöndum. Bara ekki “láta bera á” á Íslandi. Það var svo vont fyrir bisnessinn. Lítið land og allt það.  Enda lítill vandi að hóta blaðamönnum með alls kyns skeytasendingum, senda lögfræðingana sína á þá og jafnvel flæma þá burt úr starfi ef þeir voru ekki þægir. “Ég á’etta og má’etta,” var kjörorð útrásarfólks.

Umfjöllun um útrásargengið í Séð og Heyrt, sem og aðra, var yfirleitt skrifuð í gamansömum tón og á léttum nótum enda var þetta blaðið sem “gerði lífið skemmtilegra”.

Það var hins vegar alveg á hreinu að blaðið var ekki fylgjandi fákeppni, græðgisvæðingu, skattsvikum og því að örfá stórfyrirtæki væru að mylja allt undir sig á Íslandi og kúguðu alla aðra sem reyndu að vera í smá bisness líka. Þeim sjónarmiðum var oftsinnis lýst undir nafni í ritstjórnargreinum blaðsins ef einhvern fýsir að kanna það.

Kannski var það einmitt vegna þeirra áhyggna, sem koma svo glögglega í ljós í skrifum þessara tveggja einstaklinga, lögmannsins og eiginkonunnar, sem nú drottna yfir fjölmiðlum Jóns Ásgeirs, að hann þurfti endilega að eignast tímaritin líka og kostaði til ómældu fé. Enda skiptu peningar engu máli á þeim tíma – lánalínurnar hjá bönkunum opnar og dælandi fé í djúpa vasana á Gucci leðurjökkunum hans. Nú þarf  þjóðin að borga brúsann af öllu því brölti. Og flestir hefðbundnir fjölmiðlar eru á vonarvöl og því ekki til stórræðanna þegar þeir helst þyrftu á að halda.

En ég spyr. Er þessum stjórnarmönnum treystandi til að reka fjölmiðlafyrirtæki í ljósi þessara skrifa? Og hvað segir almenningur um það? Forvitnilegt væri ef blaðamenn þessara sömu miðla tækju þátt í þeirri umræðu. Það er greinilegt að siðbótar er þörf í íslenskri blaðamannastétt. Líti þar hver í eigin barm.

Bjarni Brynjólfsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins