fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Stöðvast bygging tónlistarhússins?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 7. janúar 2009 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú lítur allt út fyrir að framkvæmdir við tónlistarhúsið stöðvist.

Jónas Kristjánsson sagði reyndar að við ættum að varðveita bygginguna eins og hún er.

Þetta yrði þá okkar Gedächtniskirche, sbr. þá sem stendur í Berlín.

Ég hef reyndar haft áhyggjur af því að húsið væri fullmikið barn síns tíma.

Góðærislegt glerhýsi. Líkt og svo mörg önnur hús sem hafa verið byggð í heiminum síðustu árin. Ekki síst í Reykjavík.

Og að það færi heldur ekki vel að hafa svona mikið gler þarna úti við sjóinn þar sem gnauða saltvindar.

Einhvern tíma benti ég á að besta tillagan í samkeppninni um tónlistarhúsið hefði verið eftir franska arkitektinn Jean Nouvel.

Hugmynd hans var að húsið yrði eins og hóll í laginu – íslenskur hóll.

Þetta fékk ekki brautargengi.

Var líklega of djarft. Og ekki nógu góðærislegt.

261901a.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 20 klukkutímum
Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum