
Ég er sammála Sigurjóni Þórðarsyni sem segir að það sé varla neitt áfall fyrir Samfylkinguna að missa Guðmund Steingrímsson.
En Guðmundur er einn besti vinur Dags Eggertssonar og náinn stuðningsmaður hans.
Og hann fer yfir í Framsókn til að styðja Pál Magnússon sem fagnar komu hans.
Allir voru þeir í samtökum sem heita Röskva og starfa í Háskólanum.
Þeir sem voru í Röskvu finnst það mjög merkilegt. Flestum öðrum finnst háskólapólitík ekkert sérlega merkilegt, heldur frekar eins og æfingabúðir fyrir framapotara.
Meðal stuðningsmanna Páls á sérstakri Facebooksíðu er svo Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem einnig var í Röskvu. Hún er á þingi fyrir Samfylkinguna en gerir lykkju á leið sína til að styðja sinn gamla félaga úr háskólapólitíkinni.
Meðal stuðningsmannanna eru líka samfylkingarmennirnir Jón Þór Sturluson og Magnús Árni Magnússon.
Allt er þetta fólk mjög Evrópusinnað.
Enda ljóst að undir stjórn Páls yrði Framsókn harður – en kannski ekki ýkja fjölmennur – Evrópuflokkur.
En ágætur fyrir Samfylkinguna að hafa með í ríkisstjórn!