Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, gerir fréttina um málaferli Framsóknarflokksins og almannatengslafyrirtækisins Forystu sem Eyjan fjallaði um í gær, að umtalsefni í pistli sínum. Framsóknarflokkurinn var sýknaður af kröfu Viðars Garðarssonar, framkvæmdarstjóra Forystu, sem krafðist rúmra fimm milljóna fyrir vinnu í tengslum við kosningarnar 2016. Héraðsdómari komst að þeirri niðurstöðu að vinnan hefði verið unnin fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, en ekki Framsóknarflokkinn og sýknaði því Framsóknarflokkinn.
Mesta athygli hafa þó vinnubrögð almannatengilsins Svans Guðmundssonar vakið, eiginmanns Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina:
„Þá kemur einnig fram, að eiginmaður borgarfulltrúa hafi verið fenginn til að framkvæma greiningu á því „hvaða blaðamenn voru að skrifa hvað“ og „hverjir hefðu verið Sigmundi Davíð(Gunnlaugssyni) erfiðastir“. Þetta eru óneitanlega fróðlegar upplýsingar. Ætli svona „greining“ á skrifum blaðamanna og hverjir eru tilteknum stjórnmálaleiðtogum „erfiðastir“ sé algeng meðal stjórnmálaflokka á Íslandi? Nú liggur ekkert fyrir um það hvort svo sé en svo virðist hafa verið í þessu tilviki. Hver ætli sé tilgangurinn með svona „greiningu“ á blaðamönnum? Hvað ætli sé gert við svona upplýsingar?“
Styrmir spyr síðan hvernig brugðist verði við þessum upplýsingum:
„Í kvikmyndinni The Post, sem vitnað var til hér á síðunni í gær, kemur fram hvernig þáverandi Bandaríkjaforseti ærðist yfir skrifum Washington Post og hótaði því að blaðamenn frá því blaði mundu aldrei aftur fá að stíga fæti inn í Hvíta Húsið! Er verið að búa til eins konar svartan lista yfir einstaka blaðamenn? Það verður fróðlegt að sjá hvernig blaðamannastéttin bregst við þessum upplýsingum og hver viðbrögð Blaðamannafélags Íslandsverða? Einhverjir úr þeim hópi hljóta að spyrja spurninga.“