Össur Skarphéðinsson var gestur á Sprengisandi Sigurjóns M. Egilssonar í morgun.
Össur sagði þar merkilegan hlut – nefnilega að ríkisstjórnin sem hann sat í hefði flaskað á því að taka á málum þeirra sem voru með verðtryggð lán.
Össur sagði ennfremur að samkomulag um slíkar aðgerðir hefði ekki náðst innan stjórnarinnar. „Pólitíkin snýst enn um þetta,“ bætti hann við.
Þetta er athyglisverð yfirlýsing hjá ráðherra úr ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms. Það var semsagt ágreiningur í stjórninni um hvernig ætti að taka á skuldamálunum. Í raun vildi maður gjarnan vita meira, hverjir voru með og hverjir voru á móti.
Því það er víst að skuldamálin voru banabiti stjórnarinnar, fyrirheit um skjaldborg sem ekki var staðið við urðu þess valdandi að ríkisstjórnin tapaði meira fylgi í kosningum en dæmi eru til í Vestur-Evrópu.
Og það er býsna kvalafullt fyrir fyrrum stjórnarliða að horfa upp á flokka sem eru hægra megin í hinu pólitíska litrófi sýna fram á að það var hægt að gera miklu betur í skuldamálunum. Það er líklegt að Samfylking og VG verði lengi að jafna sig á því og í raun geta flokkarnir ekki annað en sagt já og amen við skuldaleiðréttingunni.