Það hefur verið nokkuð deilt um það hvor sé verðugri sem maður ársins, Edward Snowden eða Frans páfi.
Sjálfur hef ég heldur hallast að Snowden, en því verður ekki neitað að nýi páfinn er að gera mjög merkilega hluti innan sinnar fornu og íhaldssömu stofnunar.
Hann virðist að mörgu leyti miklu geðslegri maður en þeir sem á undan honum hafa komið, opnari fyrir breytingum, hreinskilnari og ekki eins forpokaður.
Hér má sjá vefsíðu þar sem er farið yfir nokkra hluti sem páfinn hefur gert og sagt síðan hann tók við embætti.
Hann hefur mildað afstöðuna til samkynheigðra, fordæmt ójöfnuð, auðsöfnun og neysluhyggju, farið út á meðal heimilislausra, sett sig upp á móti spillingu innan kirkjunnar, tekið harða stefnu gegn barnaníðingum í hennar röðum, talað gegn þráhyggju kirkjunar vegna getnaðarvarna, fóstureyðinga og samkynhneigðar – svo nokkuð sé nefnt.
Hann er athyglisverður maður, Frans eða Jorge Mario Bergoglio eins og hann heitir réttu nafni. Það er svo spurning hvað hann endist lengi í embætti. Hann er fæddur 1936.
Það hafa lengi verið sögusagnir um að síðasti páfi sem vildi einhverju breyta innan kirkjunnar sjálfrar, Jóhannes Páll I, hafi verið myrtur. Hann hét réttu nafni Albino Luciani og ríkti einungis í 33 daga árið 1978. Páfarnir tveir sem komu á eftir voru miklir íhaldskurfar.