fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Dagskrárstjóri útvarpsins: Menningin aukin en ekki eytt

Egill Helgason
Laugardaginn 14. desember 2013 13:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur margt skrítið verið sagt og skrifað um Ríkisútvarpið undanfarnar vikur. Mikið af því hefur verið byggt á getgátum og fyrirfram gefnum skoðunum, menn hafa ekki haft fyrir því að leita upplýsinga. Staðreyndin er sú að það hefur verið nær stanslaus niðurskurður á Ríkisútvarpinu síðan 2008. Hann hefur birst í ýmsum myndum, frestun á tækjakaupum, launlækkun, uppsögnum.

Í vor hillti loks undir að starfsemin gæti verið með nokkurn veginn eðlilegum hætti, en það reyndist vera tálsýn. Ákveðið var að skera niður framlög til stofnunarinnar um 500 milljón krónur og auk þess hefur vofað yfir 215 milljóna króna niðurskurður í viðbót.

Að þessu sinni bitnuðu uppsagnir verst á Rás 1 og fréttastofnunni – þótt aðrar deildir hafi fráleitt verið undanskildar. Aðferðirnar við uppsagnirnar voru vissulega umdeilanlegar – þær voru til þess fallnar að skapa úlfúð. Hefði mátt gera betur. En á öðrum stöðum á Ríkisútvarpinu er störf meira verkefnabundin, fólk hverfur einfaldlega á braut þegar verkefnunum lýkur. Sjónvarpið kaupir þætti sem eru framleiddir úti í bæ í miklu meira mæli en útvarpið, þegar skorið er niður þeim megin fækkar þeim verkefnum.

Sá misskilningur hefur verið uppi að standi til að loka Rás 1 eða eyðileggja hana. Samt hefur ekkert verið sagt í þá veru – ekki nema hvað menn hafa lagt út af orðum útvarpsstjóra um að Ríkisútvarpið þyrfti að hafa víða skírskotun og túlkað þau mjög frjálslega.

Þrátt fyrir niðurskurð heldur Ríkisútvarpið áfram að bjóða upp á menningarefni, fræðslu, fréttir og afþreyingu – því má ekki gleyma að RÚV á líka að skemmta. Landsmenn eru skyldugir til að greiða afnotagjöld – það eru ekki allir sem vilja hámenningu.

Magnús Ragnar Einarsson, tónlistarmaður og núverandi dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2, er í viðtali við Fréttablaðið í dag. Þetta er nokkuð tímabært viðtal og athyglisvert hvað Magnús hefur að segja. Það stendur ekki til að skera niður menninguna á Rás 1 heldur auka hana, segir Magnús:

„Áherslan er sem fyrr á íslenska menningu og við sinnum henni aðallega á þremur póstum; það er útvarpssagan, það er Sinfónían og það er útvarpsleikhúsið. Þessir þrír póstar hafa lengi verið meginstoðirnar í menningardagskrá Rásar 1 og verða það áfram. Áferð dagskrárinnar hins vegar breytist á þann hátt að hlutverk þula verður skilgreint upp á nýtt, það verða ekki lengur dagskrárþulir, einungis auglýsingaþulir. Deginum verður skipt upp í fjóra fleka með magasínþáttum sem síðan eru fleygaðir með tónlistarþáttum. Kvöldin verða svo helguð klassískri tónlist. Þessi dagskrárrammi sem við settum fram er hugsaður sem vinnuplagg sem starfsmenn munu svo taka þátt í að fullmóta á næstu vikum.“

Magnús segir að ekki standi til að hætta að útvarpa tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Víðsjá, sem hefur verið eitt flaggskip Rásar 1, verður helmingi lengri og bætt við mannskap í þáttinn. Og ennfremur:

„Ríkisútvarpið á auðvitað að vera fyrir allan almenning, en það hefur líka ríkt menningarhlutverk sem því ber að sinna og mun halda áfram að sinna. Hlustunartölur segja ekki alla söguna. Það hafa allar einkareknar útvarpsstöðvar sína markhópa og sérhanna þætti sína með það í huga að höfða til ákveðins aldurshóps eða kyns. En við á Rás 1 og Rás 2 gerum það ekki. Við höfum bara einn markhóp; viti borið fólk.“

8-ras1_hringsol

Magnús Ragnar Einarsson dagskrárstjóri og tónlistarmaður. Menn hljóta að gleðjast yfir orðum hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki