Rétt eftir hrun var ég á Sundance-kvikmyndahátíðinni og fór í kvöldverð heim til Roberts Redford. Þar sat sá mikli bissnessmaður George Soros, herra kapítalismi, og spurði mig hvaðan ég væri. „Ertu frá Íslandi já?“ sagði hann. „Þið eigið mjög heimska bissnessmenn en stórkostlegan kúltúr og þess vegna mun verða allt í lagi með ykkur.“
– Ragnar Kjartansson myndlistarmaður í viðtali við Fréttablaðið, 30. nóvember 2013