Í Kiljunni í kvöld fjöllum við um bókina Stúlka með maga eftir Þórunni Erlu- Valdimarsdóttur. Bókin er hefur undirtitilinn skáldættarsaga, þar er sögð saga móðurættar Þórunnar, séð með augum móður hennar, Erlu Þórdísar Jónsdóttur. Frásögnin er afar fjörleg, en þarna eru dramatískir atburðir, leyndarmál og fjölskyldumein.
Við fjöllum um þýðingu Stefáns Steinssonar læknis á Rannsóknum, hinni miklu sögu Persastríðanna, eftir sagnaritarann Heródótus og Alla mína stelpuspilatíð, það er saga Sigríðar Þorgrímsdóttur þar sem er meðal annars fjallað um uppvöxt í Garði í Mývatnssveit. Sigríður er dóttir rithöfundarins Jakobínu Sigurðardóttur.
Árni Þórarinsson segir frá nýjustu skáldsögu sinni sem nefnist Glæpurinn, ástarsaga.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur: Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson og Reimleikar í Reykjavík eftir Steinar Braga.