fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Eyjan

Nauðsyn að hafa öfluga fjölmiðla

Egill Helgason
Fimmtudaginn 15. ágúst 2013 16:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er furðulegt að heyra því haldið fram að aukin netnotkun valdi því að minni þörf sé á öflugum fjölmiðlum, eins og ríkisfjölmiðlunum sem tíðkast í Evrópu.

Þessu er eiginlega þveröfugt farið. Við sjáum að fjölmiðlamönnum, sem hafa reynslu og þekkingu, fækkar. Það er ódýrara að láta ungt og óreynt fólk vinna störfin. Það er líka meðfærilegra þegar eigendavaldið á í hlut. Internetið er fullt af skoðunum og upphrópunum – það getur verið erfitt að vinsa alvöru upplýsingar úr.

Ég set hér inn bút úr viðtali sem birtist við mig í DV um daginn:

„Egill er virkur bloggari og hefur verið frá árinu 2000 þegar hann byrjaði að blogga og hefur haldið því áfram nánast upp á dag. Hinir hefðbundnu fjölmiðlar, sér í lagi dagblöðin, eiga undir högg að sækja út um allan heim. Ástæðan er auðvitað internetið, þessi upplýsingabylting. Egill hefur fylgst með breytingunum og í raun verið í auga stormsins.

 “Við erum að horfa upp á dauða hefðbundinna dagblaða og mikla breytingu á allri hefðbundinni blaðamennsku. Í dag horfa menn á mína þætti á netinu til jafns og í sjónvarpi.  Þetta er allt annar veruleiki. Efnið öðlast annað líf á netinu. Það hafa þúsundir horft á brot úr Silfrinu sem voru klippt saman og sett á Youtube. Það er auðvelt að heillast af þessum heimi en mér finnst hann að sama skapi svolítið skelfilegur.”

Nauðsynlegt sé að hafa fjölmiðla með bolmagn til að skrifa fréttir, borga alvöru fólki fyrir rannsóknarvinnu og greiningar. “Ég dýrka fjölmiðla á borð við New York Times og Guardian. Þetta eru miðlar sem byggja á því að borga fólki sem hefur menntun og þekkingu laun fyrir sína vinnu. Fjölmiðill sem getur ekki borgað laun er einskis virði. Það verða að vera til miðlar sem geta borgað fyrir sérfræðiþekkingu og þeir eru ekki á netinu. Þess vegna finnst mér stóru dagblöðin og ríkisfjölmiðlarnir aldrei hafa verið mikilvægari en nú. Glundroðinn á netinu er svo mikill og auðvelt fyrir öskurapana að afvegaleiða umræðuna. Brynjar Níelsson varpar fram einhverri rökleysu og hálf þjóðin er farin í öskurkeppni af þeim sökum.”

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið

Séra Örn Bárður Jónsson: Var með doða í öðru heilahvelinu eftir námið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja

Orðið á götunni: Skrímsladeildin stýrir nú Sjálfstæðisflokknum með hjálp önugra gamlingja
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja

Hnýtir í Sigríði Andersen og spyr hvort hún sé viljandi að misskilja eða vísvitandi að blekkja
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB