fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
433

Mourinho lætur leikmenn heyra það – Fóru til tunglsins eftir sigurinn á City

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 15. apríl 2018 17:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United sá til þess að í dag varð Manchester City enskur meistari. United tók á móti West Brom á heimavelli, slakasta liði ensku úrvalsdeildarinnar.

City vann Tottenham í gær og með tapi United í dag er liðið orðið enskur meistari þegar fimm leikir eru eftir. United átti afar slakan leik í dag en í fyrri hálfleik hefði liðið átt að fá vítaspyrnu þegar brotið var á Ander Herrera.

Liðið spilaði hins vegar einn af sínum slakari leikjum í vetur og það kom í bakið á þeim á 73 mínútu leiksins þegar Jay Rodriguez tryggði sigur gestanna. Sigur City í deildinni því staðreynd en liðið hefur haft rosalega yfirburði.

,,Ég hef unnið deildartitla átta sinnum og ég fór ekki til tunglsins eftir sigurinn á City,“ sagði Jose Mourinho stjóri United eftir leik.

,,Ég sá marga leikmenn fara til tunglsins því þeir unnu City, maður sá annað viðhorf miðað við síðustu vikur.“

,,City vann ekki deildina af því að við töpuðum, þeir unnu hana af því að þeir eru með fleiri stig en allir aðrir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Fullyrt að Bruno sé meiddur og missi af sínum fyrsta United leik

Fullyrt að Bruno sé meiddur og missi af sínum fyrsta United leik
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn

Réttarhöld yfir Kolbeini um miðjan mánuðinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Virðist ekki mjög spenntur fyrir því að snúa aftur til stórliðsins

Virðist ekki mjög spenntur fyrir því að snúa aftur til stórliðsins
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Liverpool en mun halda kyrru fyrir

Var sterklega orðaður við Liverpool en mun halda kyrru fyrir
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sakar Arnar og Víking um að sýna vott af hroka í gær

Sakar Arnar og Víking um að sýna vott af hroka í gær
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Magnaður Salah setti met í ensku úrvalsdeildinni

Magnaður Salah setti met í ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarnan var ‘hökkuð’ og óvænt færsla birtist á samskiptamiðlum – ,,Ég er mættur!“

Stjarnan var ‘hökkuð’ og óvænt færsla birtist á samskiptamiðlum – ,,Ég er mættur!“