fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Trump segist ætla að láta olíuríkin við Persaflóa greiða fyrir „örugg svæði“ í Sýrlandi

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 19. febrúar 2017 18:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aleppo í Sýrlandi. Mynd/Getty images

Eins og rakið hefur verið hér á Eyjunni þá fór Donald Trump Bandaríkjaforseti um víðan völl í ræðu sinni á Melbourne-flugvelli við Orlando í Flórída-fylki í gærkvöldi. Fjölmiðlar hér á Íslandi hafa margir hverjir verið uppteknir af því að hann minntist á Svíþjóð í ræðu sinni og fjallað fátt um annað sem forsetinn sagði.

Engin athygli hefur hins vegar beinst að því sem Bandaríkjaforseti sagði um málefni flóttamanna í Sýrlandi. Þetta sagði hann:

Ég vil koma upp öruggum svæðum í Sýrlandi og á fleiri stöðum þar sem  fólkið getur verið og lifað í öryggi þar til borgir þeirra og heimalönd sem eru í rúst eins og Obama og hin skildu við þau handa mér. Vinir, við sitjum uppi með glundroða eftir þetta lið sem þið mynduð ekki trúa.

Síðan kom forsetinn aftur að því sem hann kallaði „örugg svæði:“

En við ætlum að koma upp svona öruggum svæðum og við ætlum að láta ríkin við Persaflóa borga fyrir þau því þau eiga ekkert nema peninga. Við ætlum að gera það þannig.

Trump hefur áður nefnt hugmyndina um „örugg svæði“ í Sýrlandi og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra.  Bashar-al Assad Sýrlandsforseti hefur meðal annars vísað henni á bug og sagt að þetta sé óraunhæft.

Hins vegar er það nýtt að Donald Trump hyggist láta lönd á borð við Sádi-Arabíu og önnur olíuríki við Persaflóa standa straum af kostnaðinum við þau. Óljóst er hvort þau taki slíkt í mál.

Upptaka af ræðu forsetans er hér fyrir neðan. Ummæli hans um Sýrland og „öruggu svæðin“ hefjast á tímanum 37:37.

https://www.youtube.com/watch?v=AdAavj__vvE

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki