Maður slasaðist þegar hann kastaðist af hestbaki
Um klukkan 18 í gærkvöldi var tilkynnt um slys í Víðidal en maður féll af hestbaki. Maðurinn sem var talinn viðbeinsbrotinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar.
Klukkan eitt í nótt hafði lögregla afskipti af manni í Breiðholti. Hann er grunaður um vörslu fíkniefna. Tæpum tveimur tímum síðar hafði lögregla afskipti af ökumanni bifreiðar og ætluðum landasala við Seljabraut í Breiðholti. Ökumaðurinn, sem var án ökuréttinda var að kaupa landa af manni við gagnstéttarbrún.