

Heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku hófst í kvöld þegar Mexíkó vann öruggan 2-0 sigur á Suður-Afríku í opnunarleik mótsins.
Mexíkóar byrjuðu af krafti og komust yfir strax á 9. mínútu þegar Julián Quiñones skoraði fyrsta mark heimsmeistaramótsins eftir stoðsendingu frá Érik Lira. Markið reyndist eina mark fyrri hálfleiksins en Mexíkó hafði tögl og hagldir lengst af.
Suður-Afríka fékk svo mikið áfall snemma í síðari hálfleik þegar Yanga Sithole var rekinn af velli á 49. mínútu. Leikurinn varð enn erfiðari fyrir Afríkuliðið eftir það og Mexíkó nýtti sér liðsmuninn. Sithole hafði gert slæm mistök í fyrra marki Mexíkó og átti því afar dapran dag.
Raúl Jiménez tvöfaldaði forystuna á 67. mínútu eftir góða sendingu frá Roberto Alvarado og tryggði þar með Mexíkó mikilvægan sigur í fyrsta leik sínum á mótinu.
Suður-Afríkumenn enduðu leikinn með aðeins níu menn inni á vellinum eftir að Themba Zwane fékk einnig rautt spjald á 84. mínútu. Það var svo í uppbótartíma sem Cesar Montes varnarmaður Mexíkó lét reka sig af velli.
Mexíkó byrjar því HM af krafti með þrjú stig og hreint lak, á meðan Suður-Afríka þarf að sækja stig í næstu leikjum sínum ætli liðið sér áfram úr riðlinum.