
Jude Bellingham segir mikilvægt að allir leikmenn enska landsliðsins finni að þeir skipti máli ef liðið ætlar sér að vinna HM í sumar.
Bellingham rifjaði upp EM 2024 þar sem England tapaði úrslitaleiknum gegn Spáni og sagði stemninguna innan hópsins ekki hafa verið eins góða og hún hefði getað verið.
„Mér fannst hópurinn ekki alveg tengjast eins vel og hann gat. Við vorum ekki að spila sérstaklega vel og jafnvel þegar við unnum var eins og menn gætu ekki notið þess almennilega,“ sagði miðjumaðurinn.
Bellingham segir andrúmsloftið í hópnum nú allt annað.
„Allir þurfa að finna að þeir séu elskaðir og stór hluti af liðinu. Svo þarf líka að njóta þess að pila hér.“
England hefur leik á HM gegn Króatíu næsta miðvikudag.