

Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hófst í gær en margir stuðningsmenn eru þegar ósáttir og það hefur ekkert með fótboltann að gera.
Verðskrá fyrir mat og drykk á Lumen Field í Seattle hefur verið birt og viðbrögðin á samfélagsmiðlum hafa verið hörð. Leikvangurinn, sem tekur um 72 þúsund manns í sæti, verður einn af 16 leikvöngum HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Samkvæmt verðskránni kostar venjulegur 450 ml bjór tæpar 18 bandaríkjadalir, sem jafngildir um 13,5 pundum. Innfluttur eða svokallaður „craft“-bjór kostar nærri 19 dali, eða rúmlega 14 pund eða um 2400 krónur.
Jafnvel vatnsflaska er ekki ódýr. 590 ml Dasani-vatn kostar tæpa sex dali, sem samsvarar um 4,5 pundum.

Þá kostar kringla um tíu pund og churro-sætabrauð rúmlega átta pund. Stuðningsmaður sem vill fá sér bjór og kringlu þarf því að greiða rúmlega 24 pund, eða yfir fjögur þúsund íslenskar krónur.
Óánægjan hefur aukist enn frekar eftir að FIFA kynnti reglur um vatnsflöskur á leikvöngum. Eftir gagnrýni var ákveðið að leyfa mjúkar plastflöskur, en harðar plastflöskur og málmbrúsar verða áfram bannaðir.
Margir stuðningsmenn telja verðlagninguna óhóflega. Einn þeirra skrifaði á samfélagsmiðlum: „13,5 pund fyrir bjór er hreinlega glæpsamlegt.“
Ljóst er að Heimsmeistaramótið gæti reynst kostnaðarsamt, jafnt innan sem utan vallar.