fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 11. júní 2026 14:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá tveimur málum gegn Íslandi. Frá þessu greinir Stjórnarráðið.

Annað málið varðaði þolanda kynferðisbrots sem sakaði íslenska ríkið um að hafa brugðist skyldum sínum með því að gefa ekki út ákæru í málinu og þar með ekki verndað viðkomandi gegn kynbundnu ofbeldi. Mannréttindadómstóllinn vísaði kærunni frá á grundvelli 35. gr. mannréttindasáttmálans, þar sem hann taldi ekki sýnt fram á brot gegn sáttmálanum.

Hitt málið varðaði félagafrelsi en lyfjafræðingur hjá Landspítalanum taldi brotið gegn félagafrelsi sínu þegar Félagsdómur gerði henni að sæta aðild að Lyfjafræðingafélagi Íslands. Hafði lyfjafræðingurinn sagt sig úr félaginu og gengið þess í stað í Félag náttúrufræðinga Íslands (FÍN) og fór í framhaldinu fram á það við Landspítalann að kjarasamningur síðarnefnda félagsins gilti um starfskjör hennar hjá spítalanum. Landspítalinn hafnaði því en FÍN höfðaði þá mál fyrir Félagsdómi sem hafnaði kröfum félagsins. Mannréttindadómstóllinn taldi að lyfjafræðingurinn hefði ekki tæmt innlend réttarúrræði og vísaði því málinu frá.

Samkvæmt málsnúmeri fyrra málsins á það rætur að rekja til ársins 2021 en það ár kærðu níu konur íslenska ríkið til Mannréttindadómstólsins fyrir að hafa brotið gegn rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar. Konurnar áttu það sameiginlegt að hafa kært nauðgun, heimilisofbeldi og/eða kynferðislega áreitni til lögreglu en mál þeirra voru felld niður af ákæruvaldinu.

Dómstóllinn tók afstöðu í fimm málanna í janúar og dæmdi Ísland brotlegt í einu þeirra en sýknaði í hinum fjórum. Málið þar sem Ísland var sakfellt varðaði 16 ára stúlku sem kærði 23 ára karlmann um að hafa snert sig þegar hún var sofandi eða hálfsofandi. Að mati Mannréttindadómstólsins gerðist ríkið í málinu sekt um að hafa brotið gegn friðhelgi einkalífs stúlkunnar þar sem rannsókn og meðferð málsins miðaði ekki í nægjanlegum mæli að því að staðreynda hvort samþykki til kynferðislegrar snertingar hefði legið fyrir.

Dómstóllinn komst áður að niðurstöðu í málum tveggja kvenna í ágúst á síðasta ári. Ísland var dæmt brotlegt í öðru þeirra en þar hafði kona kært fyrrverandi kærasta fyrir brot í nánu sambandi en málið fyrndist í höndum lögreglunnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna – „Ekkert af þessu varðar almenning“

Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna – „Ekkert af þessu varðar almenning“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“