

Roy Keane og Gary Neville telja að England eigi erfitt með að vinna Heimsmeistaramótið sem hefst í Bandaríkjunum á næstu dögum.
Englendingar fara inn í mótið með miklar væntingar eftir að hafa komist í úrslit síðustu tveggja Evrópumóta og náð undanúrslitum HM 2018. Thomas Tuchel hefur þó tekið nokkrar umdeildar ákvarðanir við val á lokahópi sínum og það hefur vakið umræður.
Keane sagðist ekki sjá England fara alla leið. „England er með marga góða leikmenn og ætti að komast auðveldlega upp úr riðlinum. En sé ég þá vinna HM? Alls ekki,“ sagði Írinn í hlaðvarpsþættinum The Overlap.
Hann telur stærsta vandamálið liggja í varnarlínunni. „Þegar kemur að stóru leikjunum í átta liða úrslitum eða undanúrslitum er ég ekki sannfærður um miðverðina. Það er sú staða sem veldur mér mestum áhyggjum.“
Keane gagnrýndi einnig áherslur Tuchel við hópavalið og taldi að of mikil áhersla væri lögð á leikmenn sem geta leyst margar stöður.
„Það er gott í riðlakeppninni, en þegar þú mætir bestu liðunum þarftu sérfræðinga í hverri stöðu, ekki leikmenn sem geta gert svolítið af öllu,“ sagði hann.
Neville tók undir með Keane og er ekki sannfærður um að England hafi nægilega sterkt lið til að enda 60 ára bið eftir heimsmeistaratitli.