fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
433Sport

Leikmenn greiða fyrir stuðningsmenn á HM

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 11. júní 2026 14:30

Kimmich í baráttunni við Bruno Fernandes. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýska landsliðið ætlar að greiða fyrir rútuferðir 600 stuðningsmanna á lokaleik liðsins í riðlakeppni HM eftir mikla gagnrýni á hátt verð á samgöngum á mótinu.

Þýskaland mætir Ekvador í New Jersey þann 25. júní en verð á lestarmiðum frá miðborg New York hækkaði úr tæpum 13 dollurum upp í allt að 150 dollara fyrir HM.

Rútufargjöld hafa einnig verið gagnrýnd, þó þau hafi síðar verið lækkuð úr 80 dollurum niður í 20.

Þýska knattspyrnusambandið staðfesti að leikmenn liðsins, undir forystu Joshua Kimmich fyrirliða, muni standa straum af kostnaði við rútuferðirnar.

Á HM í Rússlandi og Katar var stuðningsmönnum boðið upp á fríar samgöngur en það er annað uppi á teningnum í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt