fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Björgvunarsveitir sóttu ferðalanga á Mælifellssand

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 7. júní 2026 14:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum á Mælifellssandi sem treystu sér ekki til að halda för áfram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Tveir erlendir göngumenn voru á ferðinni og höfðu lagt upp frá Suðurlandi og ætlað Fjallabak á reiðhjólum, en leist ekki á blikuna í nótt þegar við þeim blasti mikill snjór og krapi.

Þeir höfðu þá samband í gegnum gervihnött og óskuðu aðstoðar. Í kjölfarið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tölvupóstur frá aðstandanda annars þeirra þar sem staða þeirra var tíunduð.

Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni.

Tveir bílar frá Dagrenningu komu svo að mönnunum klukkan 5 í morgun þar sem þeir höfðust við í tjaldi.

Kyndli og Stjörnunni var þá snúið við en Kyndilsfólk beið meðan Stjarnan var að komast í gegnum mestu ófærðina.

Mikill krapi hefur myndast á leiðinni og þurfti björgunarsveitarfólk að grípa til skóflunnar til að komast alla leið.

Björgunarfólk og göngumennirnir héldu svo til baka niður á Hvolsvöll, þangað sem komið var upp úr klukkan átta í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“