fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Myndaveisla: Opnun kosningaskrifstofu Miðflokksins í Reykjavík

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. apríl 2026 13:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Troðfyllt var út úr dyrum og glatt á hjalla er Miðflokkurinn í Reykjavík opnaði kosningaskrifstofu sína í Austurveri í gær.

Þar fór oddvitinn, Ari Edwald,  með ræðu þar sem hann sagði reynslu sína af rekstri stórra fyrirtækja þýða að hann viti upp á hár hvað þurfi svo rekstur borgarinnar verði heilbrigður á ný með tilheyrandi létti á rekstri heimila borgarbúa. Áherslur framboðsins eru eftirfarandi:

  • Burt með Borgarlínu – Miðflokkurinn vill taka upp hagkvæmt hraðvagnakerfi (Strætó) með betri vögnum og fleiri ferðum. Efla leiðarkerfi og hafa forgangsakreinar hægra megin við umferð. Prófa að hafa frítt í Strætó til þriggja ára í tilraunaskyni. Ráðast í gatnaframkvæmdir til að greiða fyrir bílaumferð. Auka afköst umferðarljósa með snjallstýringu.
  • Stórbætt bílastæði – Miðflokkurinn vill endurheimta bílastæði á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Stytta gjaldskyldu og lækka gjöld í miðbænum, t.d. úr 660 kr. í 430 kr. Flokkurinn vill fækka gjaldskyldum svæðum í hverfum borgarinnar og rýmka reglur um íbúakort. Eins vill flokkurinn fjölga bílastæðum á hverja íbúð í nýbyggingum.
  • Virðing fyrir peningum borgarbúa – Miðflokkurinn vill lækka útsvar íbúa með tiltekt og ráðdeild í rekstri borgarinnar. Borgarbúar eigi að njóta hagkvæmni stærðarinnar í stað þess að stjórnsýslukostnaður sé 50 prósentum hærri en í fimm stærstu nágrannasveitarfélögunum. Grunnþjónusta við íbúa á að vera í forgangi og flokkurinn vill hætta við verkefni sem eru ekki virðisaukandi fyrir borgarbúa. Loks vill flokkurinn fækka borgarfulltrúum.
  • Fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum – Miðflokkurinn vill bjóða foreldrum barna sem ekki eru með leikskólapláss við 12 mánaða aldur 250 þúsund krónur í heimgreiðslur. Eins vill flokkurinn auðvelda rekstur sjálfstæðra og vinnustaðatengdra leikskóla og gera umhverfi leikskóla heilnæmara og sleppa dyggðaskreytingum á borð við Brákarborg.
  • Skólar sem skara fram úr – Miðflokkurinn vill taka upp metnaðarfull samræmd próf við lok grunnskólagöngu og stórbæta starfsaðstæður kennara svo þeir geti einbeitt sér að kennslu nemenda í stað félagsþjónustuhlutverks. Flokkurinn vill opna móttökudeildir þar sem nemandi verður að ná grunnfærni í íslensku áður en almennt nám hefst. Loks vill flokkurinn gera skólastofur að alvöru umgjörð um öfluga kennslu án áróðurs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“
Fréttir
Í gær

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ný könnun á Akureyri: Samfylkingin á stórsiglingu en óljóst hverjir geta myndað meirihluta

Ný könnun á Akureyri: Samfylkingin á stórsiglingu en óljóst hverjir geta myndað meirihluta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ný könnun í Kópavogi: Miklar sviptingar og margir möguleikar í stöðunni

Ný könnun í Kópavogi: Miklar sviptingar og margir möguleikar í stöðunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“