fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Guðmundur Ingi tekur slaginn með Flokki fólksins

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. mars 2026 15:21

Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, mun leiða lista Flokks Fólksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor.

Þetta kemur fram í tilkynningu en aðrir í efstu sætum listans voru einnig kynntir á blaðamannafundi rétt í þessu. Guðmundur Ingi sóttist eftir sæti á lista Samfylkingarinnar en hlaut ekki bindandi sæti í prófkjöri og uppstillingarnefnd bauð honum ekki sæti á listanum og spruttu af því opinberar deilur. Sakaði nefndin Guðmund meðal annars um að reyna að beita öðrum flokkum fyrir sig til að komast á listann en nefndin var á móti meðal annars sökuð um að hafna Guðmundi Inga fyrst og fremst af því hann hefur áður setið í fangelsi.

Guðmundur Ingi hefur verið orðaður við Flokk fólksins en hann hefur opnað framboðssíðu í eigin nafni sem þótti gefa til kynna að hann hann ætlaði að standa fyrir eigin framboði en nú er ljóst að svo er ekki.

Í tilkynningunni frá Flokki fólksins segir að Guðmundur Ingi leiði öflugan framboðslista Flokks fólksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí. Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi skipi annað sætið og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari sé í þriðja sæti. Fjórða sætið skipi Sigurveig Jóhannsdóttir ráðgjafi ungmenna með fjölþættan vanda, Rúnar Sigurjónsson vélvirki og varaborgarfulltrúi skipi fimmta sætið og Lilja S. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur sé í sjötta sæti.

Flokkur fólksins haldi bjartsýnn út í kosningabaráttuna í Reykjavík. Áherslur flokksins í núverandi borgarmeirihluta sem stofnað var til fyrir rúmu ári hafi margar skilað sér. Þar beri hæst að nefna aukið framboð á lóðum til íbúðarbygginga þar sem þegar sé byrjað að undirbúa skipulag fyrir um 3.700 íbúðir í Úlfarsárdal. Heildaráætlun geri hins vegar ráð fyrir að þar rísi allt að tíu þúsund íbúðir á næstu árum.

Stefnan

Í tilkynningunni segir enn fremur að helstu stefnumál Flokks fólksins í borginni séu að einfalda stjórnkerfið og að forgangsraða fjármunum fyrst og fremst í grunnþjónustu við íbúa.

Nauðsynlegt sé að taka heildstætt á málefnum eldra fólks með því að fækka fólki markvisst á biðlistum, efla heimaþjónustu og styðja við fjölbreyttari búsetuúrræði. Auk þess verði að stuðla almennt að aukinni virkni og bættum lífskjörum eldra fólks.

Ráðist verði í stórfellda uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og smærri íbúðum í samstarfi við óhagnaðardrifin félög. Flokkur fólksins muni stemma stigu við lóðabraski og vinda ofan af ofurþéttingu byggðar með því að útvíkka vaxtamörk borgarinnar.

Greiða verði fyrir samgöngum og betra umferðarflæði fyrir alla ferðamáta í borginni. Tryggja þurfi að samgöngukerfið virki fyrir alla borgarbúa. Taka verði eðlilegt tillit til þeirra fjölmörgu sem reiði sig á einkabílinn dagsdaglega.

Leikskólamálin verði tekin föstum tökum með það að aðalmarkmiði að stytta biðlista verulega. Flokkurinn vilji skoða mun fjölbreyttari og skilvirkari leiðir til að fjölga plássum og koma betur til móts við þarfir barnafjölskyldna á meðan beðið sé eftir varanlegu plássi.

Grunnskólakerfið verði eflt með ríka áherslu á gæði menntunar, aukna lestrarkennslu, einstaklingsmiðaðan stuðning og vellíðan barna. 

Nauðsynlegt sé að setja snemmtækan og heildstæðan stuðning við börn og ungmenni sem glími við fjölþættan vanda í algeran forgang. Leggja þurfi ríka áherslu á að þættir innan velferðarkerfisins vinni mun betur saman sem ein heild svo engin fjölskylda upplifi sig týnda í kerfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu

Kærður fyrir að misþyrma gæludýrinu sínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“