fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fókus

Óskarsverðlaunakjólinn var saumaður utan á Paltrow – „Ég gat ekki pissað allt kvöldið“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjóll leikkonunnar Gwyneth Paltrow vakti mikla athygli á Óskarsverðlaunahátíðinni síðasta sunnudag. Sumum fannst hann fallegur og öðrum fannst hann furðulegur. En kjólinn var mun flóknari en leit út fyrir. 

Hvítur kjóllinn frá Giorgio Armani Privé virðist við fyrstu sýn vera einfaldur, axlarlaus kjóll. Undir kjólnum klæddist Paltrow gegnsæjum glitrandi buxum sem sýndu langa og fallega fætur hennar.

Í myndbandi á bak við tjöldin sem birt var á YouTube-síðu Goop deildi Paltrow undirbúningi sínum fyrir rauða dregilinn, þar á meðal FaceTime-spjalli við dóttur sína Apple.

„Þetta er frekar einfalt, þetta er fallegt,“ sagði Paltrow og bætti við að verið væri að sauma kjólinn utan á hana. „Ég mun ekki geta pissað allan tímann sem ég er þarna,“ sagði hún.

Paltrow var ekki tilnefnd til verðlauna fyrir hlutverk sitt í Marty Supreme, en hún steig á svið og afhenti Óskarsverðlaunin fyrir besta leikaraval á athöfninni.

Til að undirbúa sig fyrir stóra kvöldið notaði Paltrow húðvörur fyrirtækis síns, þar á meðal Youth-Boost Peptide Serum og All-in-One Super Nutrient Face Oil sem hún kallar töfraefnið. Förðunarfræðingurinn Georgie Eisdell gaf Paltrow tvö andlitsnudd og notaði dýra Lyma-leysigeislann ásamt augnmaska.

Paltrow hlaut Óskar árið 1999 fyrir hlutverk sitt í Shakespeare in Love, hún segir undirbúning fyrir hátíðina þá hafa verið mun einfaldari en núna og hafa falist í hári og förðun.

„Ef það þarf svona marga til að undirbúa mig núna, þá er þetta bara búið,“ sagði hún í gríni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set
Fókus
Fyrir 2 dögum

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“

Skúffuð yfir að önnur heiðraði minningu Robert Redford -„Ég hef meira að segja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi