fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómur var í dag kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir Þórarni Arnari Sævarssyni, einum eigenda fasteignasölunnar RE/MAX, og félaginu IREF ehf. fyrir markaðsmisnotkun.

Brotin fólust í því að hafa í 71 skipti, á tímabilinu frá og með 26. ágúst til og með 9. október 2020, lagt fram viðskiptafyrirmæli um kaup á hlutabréfum í Kviku banka hf. sem voru líkleg til að gefa ranga eða villandi mynd af eftirspurn og verði hlutabréfanna. Voru meint brot framin með því að ganga kerfisbundið og ítrekað að hagstæðasta sölutilboði þegar það var hærra en síðasta viðskiptaverð, án þess að lögmæt viðskiptaleg sjónarmið hafi ráðið þeim ákvörðunum, og setja inn fjölmörg kauptilboð sem leiddu til pörunarviðskipta sem voru til þess fallin að gefa ranga og villandi mynd af verði og eftirspurn eftir hlutabréfum í Kviku banka.

Þórarinn var í ákæru héraðssaksóknara sagður með þessu athæfi hafa ítrekað átt síðustu viðskipti með hlutabréf í Kviku banka hf. innan viðskiptadags og þannig stuðlað að því að hækkun dagslokaverðs bréfanna í Kviku hækkaði eða að verðið endaði í efri mörkum fyrirliggjandi verðbils.

Sjá einnig: Eigandi RE/MAX ákærður fyrir markaðsmisnotkun

Viðskiptin voru sögð hafa verið villandi eða líkleg til að vera villandi fyrir fjárfesta sem aðhafast á grundvelli birts verð, sérstaklega síðasta viðskiptaverðs og lokaverðs. Tilgangur viðskiptanna hafi verið að gera tengdum félögum kleift að selja beinan og  óbeinan eignarhlut sinn í Kviku banka hf,. á hagstæðara verði en ella hefði fengist.

Skilorðsbundinn dómur

Þórarinn Arnar Sævarsson var fundinn sekur og  dæmdur í 12 mánaða fangelsi en dómurinn er skilorðsbundinn.

Félagið IREF ehf. var dæmt til að greiða 50 milljóna króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Keypti glæsihöll Antons Kristinn

Sem fyrr segir er Þórarinn Arnar Sævarsson einn eigenda fasteignasölunnar RE/MAX. Hann var í fréttum í fyrra fyrir kaup á glæsihýsi Antons Kristins Þórarinssonar, við Haukanes í Garðabæ. Kaupverðið nam hátt í hálfan milljarð, 484 milljónum króna. Húsið er 621 fermetri að stærð, á tveimur hæðum og byggt árið 2023. Sjá nánar hér.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás
Fréttir
Í gær

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni

Fagna áformum um hertari refsingar við ólöglegri dreifingu á sjónvarpsefni