fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Vildi láta meta hvort barnsfaðirinn væri með vitræna getu til að véfengja rúmlega 50 ára faðernisviðurkenningu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur vísað frá máli konu sem krafðist þess að dómkvaddir yrðu tveir matsmenn, öldrunarlæknir og geðlæknir, til að svara tilgreindum spurningum um andlega heilsu skráðs barnsföður hennar, en meinti barnsfaðirinn hefur farið fram á að dómstólar ógildi faðernisviðurkenningu hans frá árinu 1973 með dómi og að framkvæmd verði mannerfðafræðileg rannsókn á honum sjálfum, móður barnsins og á barninu sjálfu.

Landsréttur vísaði málinu frá þar sem að móðirin skilaði ekki kærumálsgögnum innan lögbundins frests, en áður hafði héraðsdómur hafnað kröfu um dómkvaðningu matsmanna þar sem að læknisvottorð bendi til þess að barnsfaðirinn sé ekki með skerta dómgreind og væri með fullt hæfi til að gera löggerninga. Héraðsdómari taldi það svo bersýnilegt að mat á andlegri heilsu væri tilgangslaust til sönnunar í máli þar sem ágreiningur snýst um faðerni uppkomins barns.

Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að konan hafi fætt sveinbarn árið 1972 og að ári síðar hafi maðurinn skrifað undir yfirlýsingu þar sem hann viðurkenndi að vera faðir barnsins. Nú, rúmlega hálfri öld síðar, vill maðurinn vefengja faðernisviðurkenninguna.

Konan fór þá fram á dómkvaðningu tveggja matsmanna, eins og áður segir, sem ættu meðal annars að leggja mat á hvort að maðurinn væri með það mikla vitræna skerðingu að hann gæti ekki tekið mikilvægar ákvarðanir á borð við að hefja málsókn og hvort að vitræn skerðing hafi gert hann viðkvæmari fyrir áhrifum annarra við töku mikilvægra ákvarðana. Faðernisviðurkenning hafi legið fyrir í hálfa öld án þess að maðurinn hafi séð ástæðu til að fá henni hnekkt, þar til nú.

Konan taldi að maðurinn hefði undirritað undarlega kaupmála árin 2023 og 2025 sem mættu teljast óvenjulegir með tilliti til aldurs og fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar hans. Eins bendi rithönd hans á umboð til lögmanns til þess að hann gæti glímt við vitræna erfiðleika, skerta getu og verið viðkvæmur fyrir áhrifum annarra. Meta þurfi hvort að maðurinn hafi verið í stöðu til að taka sjálfstæðar ákvarðanir, bæði persónulegar og fjárhagslegar.

Var konan sökuð um að reyna að tefja mál til vefengingar á faðernisviðurkenningu með þessari matsbeiðni sinni en hún hafnaði þeim ásökunum. Maðurinn hafi „boðið upp í þennan dans“ með málshöfðun sinni.

Maðurinn vísaði til þess að hann njóti fulls gerhæfis og aðildarhæfis enda hafi hann ekki verið sviptur lögræði. Læknisvottorð liggi nú þegar fyrir í málinu frá öldrunarlækni þar sem fram kemur að hann sé greindur með væga vitræna skerðingu en hafi þó hæfi til málsóknar. Vottorð þetta byggi á langri eftirfylgd og vísindarannsókn sem og upplýsingum úr sjúkraskrá. Spurningarnar sem konan vill leggja fyrir matsmenn fari langt út fyrir tilgang matsins og þjóni ekki þeim tilgangi sem stefnt er að. Eins hafi konan enga lögvarða hagsmuni af því að fá mat á heilsufari mannsins allt frá árinu 2022. Hér sé um að ræða viðkvæmar persónulegar heilsufarsupplýsingar sem njóta verndar persónuverndarlaga.

Dómari tók fram að ljóst væri að konan ætlaði sér að reyna að sanna að maðurinn væri ekki fær um að höfða véfengingarmál upp á sitt eindæmi, en þó væri óljóst hvers vegna þörf væri á mati á heilsufari mannsins allt frá árinu 2022 þegar áðurnefnt véfengingarmál var höfðað í febrúar á síðasta máli. Kröfu konunnar var því hafnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum