
Þetta á líka við um það sem fólk velur að borða. Stundum getur virst sem þetta val skipti litlu máli en með tímanum getur þetta haft áhrif á jafnvægið í líkamanum.
Margir tengja blóðþrýstinginn við lyf og saltneyslu. Næringarfræðingar benda þó í auknum mæli á það sem skortir í matinn okkar og segja að það geti skipt jafn miklu máli og það sem við fáum of mikið af.
Of hár blóðþrýstingur er ansi algengur en margar rannsóknir hafa sýnt fram á að margir innbyrða of lítið af kalíum.
Næringarfræðingar, sem EatingWell vitnar í, segja að þetta tengist of mikilli neyslu ofurunninna matvæla og lítilli neyslu á ávöxtum og grænmeti.
Þeir ráðleggja fólki því að borða fleiri banana. Það er auðvelt að nálgast þá og það er auðvelt að borða þá reglulega.
Í mataræði, eins og DASH, eru bananar einmitt taldir upp sem traust uppspretta kalíums.
Kalíum hjálpar líkamanum að koma jafnvægi á vökvabúskapinn og vinnur gegn of miklu magni natríums. Segja næringarsérfræðingar að kalíum geti hjálpað æðunum við að slaka á og komið betra jafnvægi á blóðþrýstinginn.
Bananar innihalda trefjar og fleira sem styrkir starfsemi æðakerfisins. Þeir hafa einnig jákvæð áhrif á heilbrigði þarmaflórunnar.
Fyrir flesta er lítið mál að borða banana en þeir sem eru með sykursýki, nýrnasjúkdóma eða taka lyf, sem hafa áhrif á kalíumjafnvægi líkamans, ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir fara að borða banana reglulega.
Byggt á umfjöllun EatingWell og NIH.