fbpx
Miðvikudagur 11.febrúar 2026
433Sport

Svarar með yfirlýsingu eftir læti gærdagsins

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eni Aluko, fyrrverandi landsliðskona Englands og sparkspekingur, hefur svarað Lauru Woods eftir að Woods gagnrýndi ummæli hennar um umfjöllun um kvennafótbolta og hlutverk karlkyns sérfræðinga á leikjum.

Aluko vakti mikla athygli þegar hún ræddi málið í hlaðvarpinu 90s Baby Show og sagði að það þyrfti að vernda kvennaleikinn á svipaðan hátt og karlaleikurinn er verndaður. Hún lýsti óánægju með að Ian Wright og Nedum Onuoha hefðu verið tveir af sex sérfræðingum BBC og ITV í úrslitaleik EM kvenna, þar sem England vann Spán í vítaspyrnukeppni. Aluko benti á að hún sjálf og Fara Williams hefðu verið í stúkunni á meðan.

Laura Woods, sem hefur oft unnið með Aluko, brást við og sagði slíka nálgun draga kvennaíþróttir og kvennasérfræðinga niður. Hún varði einnig Ian Wright og hrósaði honum fyrir framlag sitt til að efla kvennafótbolta.

Á mánudag birti Aluko yfirlýsingu þar sem hún skýrði mál sitt. „Ég ber virðingu fyrir skoðunum Lauru eins og ég hef alltaf gert,“ sagði hún við talkSPORT.

Eni Aluko. Getty Images

Hún benti á að hún hefði starfað með fremstu sérfræðingum í rúman áratug og því væri ljóst að hún hefði sjálf verið metin hæf.

„Ég tel að kvennafótbolti eigi að forgangsraða konum sem andlit íþróttarinnar,“ sagði Aluko.

„Konur ættu að vera ráðandi afl í kvennaleiknum, eins og karlar eru í karlaleiknum. Það þýðir að karlar geti frekar verið í stuðningshlutverki.“

Hún tók fram að enginn væri að tala fyrir útilokun karla, heldur skýrari hlutverkaskiptingu. „Fólki er frjálst að vera ósammála, á meðan það virðir minn rétt til skoðana,“ bætti hún við. Umræðan hefur vakið talsverð viðbrögð í knattspyrnuheiminum.

Aluko er gjörn á að munnhöggvast við fólk um hitt og þetta, hefur það orðið til þess að hún fær færri tækifæri í sjónvarpi en áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Skoða það að reka Dyche – Yrði þriðji stjórinn á þessu tímabili sem fær sparkið

Skoða það að reka Dyche – Yrði þriðji stjórinn á þessu tímabili sem fær sparkið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Botnar ekkert í því hvernig Roy Keane hagar sér

Botnar ekkert í því hvernig Roy Keane hagar sér
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Nýjasti leikmaður Liverpool líklega frá út tímabilið

Nýjasti leikmaður Liverpool líklega frá út tímabilið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Birtir mynd af sér á sjúkrahúsinu eftir mikla aðgerð – Staðfestir að draumurinn sé úr sögunni

Birtir mynd af sér á sjúkrahúsinu eftir mikla aðgerð – Staðfestir að draumurinn sé úr sögunni
433Sport
Í gær

Valdi draumalið Manchester United – Var herjað á hann af hverju þessi kemst ekki í liðið

Valdi draumalið Manchester United – Var herjað á hann af hverju þessi kemst ekki í liðið
433Sport
Í gær

Gary Neville með kenningu um það sem gerðist á Anfield í gær

Gary Neville með kenningu um það sem gerðist á Anfield í gær