fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Nauðgari sýndi enga miskunn á nýársdag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært erlendan ríkisborgara (þjóðerni hans er afmáð úr afriti ákæru) fyrir nauðgun að morgni 1. janúar árið 2024.

Brotið var framið í svefnherbergi á ótilteknum stað, samkvæmt ákæru. Maðurinn er sakaður um að hafa beitt konu ofbeldi og ólögmætri nauðung með því að hafa án samþykkis samræði og önnur kynferðismök við hana.

Segir að ákærði hafi beðið konuna ítrekað um samræði, ýtt henni á rúmið, afklætt hana og haldið henni niðri, sleikt kynfæri hennar og haft við hana samræði. Skeytti hann því engu að konan ítrekaði með orðum og athöfnum að hún vildi þetta ekki og bað hann um að láta af háttseminnni, klóraði hann auk þess og kleip. Af þessu hlaut konan mar á læri.

Fyrir hönd konunnar er krafist miskabóta að fjárhæð þrjár milljónir króna.

Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun en réttarhöldin eru fyrir luktum dyrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar

Áhrifamáttur Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist
Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða