fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hversu oft er eðlilegt að pissa daglega? – Svarið kemur mörgum á óvart

Pressan
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 20:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú þekkir þetta eflaust, þú ert nýbúinn að pissa og hálftíma síðar þarftu aftur að fara og pissa. Er það eðlilegt? Eða ertu að breytast í mannlegan krana?

Áður en þú rýkur til og gúgglar einkenni og greinir þig með allt frá sykursýki til nýrnavandamála, þá skaltu staldra aðeins við því það er mjög mismunandi hversu oft við þurfum að fara á klósettið og það er algjörlega eðlilegt að því er segir í umfjöllun Hazipatika.

Medical News Today segir að flestir fari 6-7 sinnum á klósettið á sólarhring. Það hljómar kannski sem oft en þú hugsar út í þetta, þá virðist þetta vera passlegt.

Það kemur mörgum eflaust á óvart að 4 til 10 sinnum á dag er talið eðlilegt. Sú tíðni fellur undir það sem fagfólk kallar heilbrigða blöðru.

Þannig að hvort sem þú ert undir eða yfir meðaltalinu, þá er líklega ekkert að þér.

Þetta snýst að miklu leyti um venjur þínar. Ef þú drekkur mikið kaffi, te eða orkudrykki, sem eru vatnslosandi, þá þarftu auðvitað að pissa oftar.

Síðan eru það þeir sem gleyma sífellt að drekka vatn og þess vegna þurfa þeir ekki að fara oft á klósettið.

Það er mikilvægt að hlusta á líkamann. Ef þú þarft skyndilega að pissa ótt og títt eða ef þig svíður þegar þú pissar, þvag lekur þegar þú ert ekki að pissa eða þér finnst sem þú náir aldrei að tæma blöðruna, þá er góð hugmynd að láta skoða sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu