fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gervigreindin er komin í prentarana

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 15:34

HP prentari með MS Copilot.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

HP kynnti prentara með tengingu við gervigreindarfélagann Microsoft Copilot á tæknimessunni CES í byrjun árs. Markmiðið er að einfalda prentun og skönnun fyrir fyrirtæki og bæta skilvirkni í daglegum verkferlum með aðstoð Microsoft Copilot og Microsoft 365.

Í fyrirtækjaprenturum HP verður hægt að samþætta við Microsoft Copilot. Notendur munu geta skráð sig inn á prentarann beint í gegnum snertiskjáinn með Microsoft 365 aðgangi sínum og fengið aðgang að OneDrive skjölum til útprentunar. „Ef Copilot-leyfi er tengt við aðganginn verður einnig hægt að nýta gervigreindareiginleika á prentaranum, svo sem að taka saman skjöl, þýða þau og vinna með efnið áður en það er prentað eða skannað“ segir Hallur Flosason rekstrarstjóri prentlausna hjá OK.

Í fjölnotatækjum mun gervigreind aðstoða við greiningu á skönnuðum skjölum, stinga upp á heppilegum titlum og vistunarstöðum og einfalda skjalavinnslu. Einnig mun hún geta gert samantekt úr skönnuðum skjölum sem fylgja með í tölvupóstum. Gervigreindin mun einnig hafa ákveðna ritskoðunareiginleika (e. Guided redaction) sem sjálfvirkt geta hulið viðkvæmar upplýsingar áður en skjöl eru prentuð eða send áfram. Lausnin er hönnuð til að draga úr handavinnu og bæta yfirsýn í skjalastjórnun fyrirtækja.

HP segir að með því að samþætta Microsoft Copilot við prentara vilji það hjálpa fyrirtækjum að auka skilvirkni og framleiðni. „Samkvæmt spám Microsoft er gert ráð fyrir að meirihluti stærstu fyrirtækja heims muni nýta Microsoft 365 Copilot á næstu árum til að styðja við sjálfvirka og snjalla verkferla,“ segir Hallur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti

Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík kynntur – Regína í sjöunda sæti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin

Skatturinn vildi vita hvaðan eigandi tælenskrar nuddstofu fékk alla þessa peninga – Hún sagðist bara vera svona heppin