
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði fulltrúa bandaríska sendiráðsins á teppið í dag. Tilefnið er ummæli Billy Long væntanlegs sendiherra á Íslandi um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna.
Fulltrúinn verður krafinn skýringa í utanríkisráðuneytinu í dag um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Markmiðið sé að fá skýringar og segir Þorgerður Katrín afstöðu tekna í framhaldinu. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu að bregðast við vegna ummælumLong, sem hann lét falla í samtali við bandaríska þingmenn. Long baðst síðar afsökunar á orðum sínum.
Bandaríkjastjórn hefur tilnefnt Long sem sendiherra á Íslandi en hann hefur þó enn ekki verið skipaður.
Þorgerður Katrín ræddi málið á Bylgjunni í dag í Reykjavík síðdegis þar sem hún var spurð hvort og hvernig hún hygðist bregðast við:
„Já, við erum að fá fulltrúa bandaríska sendiráðsins hingað á fund til okkar í dag. Við viljum fá skýra mynd af þessu. Hvort þessi orð hafi verið látin falla eða í hvaða umhverfi þetta gerðist. Mér er ekki skemmt ef að þetta er rétt. En ég held að í öllu þessu umróti sem er í dag þá skipti miklu máli að vera með skýrar upplýsingar, skýra mynd af því sem gert hefur verið, sagt hefur verið, og það er það sem að við viljum fá frá sendiráðinu.“
Sagðist hún ekki ætla í yfirlýsingar um eitthvað sem enn væri óljóst. „En það er alveg ljóst að ef að þetta hefur átt að vera einhver húmor, þá er mér ekki skemmt. Og það er náttúrlega yfirgengilegt á þessum tímum líka að vera að gera grín að og skopast með fullveldi þjóða.“