fbpx
Þriðjudagur 30.desember 2025
Pressan

Þetta mun Trump hafa öskrað á þingkonu sína eftir að hún krafðist þess að Epstein-skjölin yrðu birt – „Hann var mjög reiður“

Pressan
Þriðjudaginn 30. desember 2025 11:30

WASHINGTON, DC - NOVEMBER 14: U.S. Rep. Marjorie Taylor Greene (R-GA) speaks alongside U.S. Rep. Tony Gonzales (R-TX) at a news conference on border security outside of the U.S. Capitol Building on November 14, 2023 in Washington, DC. The House Republicans spoke to reporters about the tabled impeachment motion for U.S. Homeland Security Secretary Alejandro Mayorkas and the southern border. (Photo by Anna Moneymaker/Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúadeildarþingmaðurinn Marjorie Taylor Greene ætlar að hætta á þingi á nýju ári. Hún var áður mikill stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta en hefur nú snúið við honum baki og ákvað á dögunum að láta allt fjúka í viðtali við The New York Times. Þar útskýrir Greene að kornið sem fyllti mælinn hafi verið mál níðingsins Jeffreys Epstein og viðbrögð forsetans við kröfu hennar um að öll Epstein-skjölin yrðu opinberuð.

„Epstein-skjölin eru tákn alls þess sem er að í Washington,“ sagði Greene. „Rík og valdamikil elíta sem fær að komast upp með hrottalega hluti á kostnað kvenna.“

Greene ræddi við þolendur Epsteins í september á lokuðum fundi eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar. Hún segir að lýsingar þolenda hafi sýnt hversu mikilvægt væri að draga alla þá sem áttu hlut að glæpum Epsteins til ábyrgðar. Hún kallaði til blaðamenn og hótaði því að ef stjórnvöld vörpuðu ekki hulunni af samverkamönnum Epsteins myndi hún gera það sjálf í samstarfi við þolendur.

Fyrir vikið fékk hún reiðilestur frá forsetanum og segir að þetta hafi í raun verið þeirra seinasta formlega samtal. Að sögn þeirra sem urðu vitni að símtalinu gátu allir viðstaddir heyrt öskrin í forsetanum.

Forsetinn mun meðal annars hafa öskrað: „Vinir mínir verða fyrir skaða.“

Greene segist þá hafa stungið upp á því að forsetinn fengi þolendur í heimsókn til sín í Hvíta húsið. Þannig gæti Trump sýnt heiminum að hann væri að hlusta. Að sögn Greene tók Trump ekki vel í þessa hugmynd og sagði að þolendur hefðu ekkert gert til að eiga slíkan heiður skilið.

Greene lýsti símtalinu nýlega í viðtali við 60 Minutes með eftirfarandi hætti:

„Við ræddum um Epstein-skjölin og hann var mjög reiður yfir því að ég hafi skrifað undir kröfu um að skjölin yrðu birt. […] Hann sagði að slíkt myndi valda tilteknum einstaklingum skaða.“

Greene segir nú að Trump sé ekki sá maður sem hún taldi hann vera. Hún leit á hann sem mann fólksins.

„Ég var bara svo barnaleg og hafði staðið fyrir utan stjórnmálin. Það var auðvelt fyrir mig að trúa í blindni.“

Greene segir að Trump hafi svo sýnt sitt rétta andlit eftir að hann tók við embætti. Forsetinn haldi því fram að hann sé kristinn, en orðræða hans og framkoma í garð annarra bendi til hins gagnstæða.

„Allir segja: hún er búin að breytast. Ég hef engu breytt með mínar skoðanir, en ég hef þroskast. Ég hef öðlast meiri dýpt. Ég er búin að læra á stjórnmálakerfið og sé hvað það er brotið.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjölskyldufríið varð að martröð þegar móðirin ákvað að kaffæra ókunnugt barn til að kenna því lexíu

Fjölskyldufríið varð að martröð þegar móðirin ákvað að kaffæra ókunnugt barn til að kenna því lexíu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sögulegir hlutir gerðust um jól: Einn undarlegasti atburður fyrri heimsstyrjaldarinnar átti sér stað á jóladag 1914

Sögulegir hlutir gerðust um jól: Einn undarlegasti atburður fyrri heimsstyrjaldarinnar átti sér stað á jóladag 1914
Pressan
Fyrir 5 dögum

Martröð á jólum sem endaði með björgunaraðgerð í anda hasarmynda

Martröð á jólum sem endaði með björgunaraðgerð í anda hasarmynda
Pressan
Fyrir 5 dögum

Jólakærleikur 10 ára drengs – Færir börnum í athvörfum náttföt og bækur

Jólakærleikur 10 ára drengs – Færir börnum í athvörfum náttföt og bækur
Pressan
Fyrir 1 viku

Tónlistarkonan lofsöng Trump og sagði hann fyrirmynd fyrir unga karlmenn

Tónlistarkonan lofsöng Trump og sagði hann fyrirmynd fyrir unga karlmenn
Pressan
Fyrir 1 viku

Aðgerðahópur dulbúinn sem jólasveinn og álfar stálu matvörum að hætti Hróa hattar

Aðgerðahópur dulbúinn sem jólasveinn og álfar stálu matvörum að hætti Hróa hattar
Pressan
Fyrir 1 viku

Fyrrverandi einræðisherra lifir þægilegu lúxuslífi í Rússlandi

Fyrrverandi einræðisherra lifir þægilegu lúxuslífi í Rússlandi
Pressan
Fyrir 1 viku

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“

Köttur sem týndist í fellibylnum Helene sameinaðist fjölskyldu sinni á undraverðan hátt eftir 443 dag – „Jólakraftaverk“