fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Fyrrverandi barnastjarnan óþekkjanleg – Heimilislaus í hjartnæmu myndbandi

Pressan
Mánudaginn 22. desember 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi Nickelodeon-stjarnan Tylor Chase er heimilislaus og býr á götum Riverside í Kaliforníu. 

Í hjartnæmu myndskeiði sem upphaflega birtist í september má sjá Chase, sem er 36 ára og lék Martin Qwerly í þáttunum Ned’s Declassified School Survival Guide frá 2004 til 2007, svara spurningum frá aðdáanda.

Aðdáandinn sem tók upptökuna spurði Chase, sem virtist mjög ringlaður, hvort hann væri á Disney Channel.

„Nickelodeon,“ útskýrði Chase og sagði aðdáandanum að hann væri í Ned’s Declassified.

„Já, þú ert krakkinn í þáttunum,“ svaraði aðdáandinn, á meðan Chase sagði henni fullt nafn sitt.

Myndbandið af Chase vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum.

„Þetta brýtur hjarta mitt,“ skrifaði einn aðdáandi þáttanna á samfélagsmiðla. „Þetta gerði mig svo leiðan,“ sagði annar.

Nokkrir aðdáendur gagnrýndu þann sem tók Chase upp og birti myndbandið.

„Af hverju myndirðu taka hann upp nema það væri til að reyna að fá hjálp fyrir hann? Skammastu þín,“ skrifaði einn á X:

Söfnun sett af stað

Eftir að myndbandið af Chase fór á kreik í september var GoFundMe söfnun sett á laggirnar til að hjálpa honum. Síðan safnaði að sögn yfir 1.200 dölum áður en móðir Chase lokaði henni.

„Tylor þarfnast læknisaðstoðar, ekki peninga. En hann neitar að leita aðstoðar,“ sagði móðir hans.  „Ég kann að meta viðleitni þína. En peningar myndu ekki gagnast honum. Ég hef látið hann hafa nokkra síma, en hann týnir þeim á einum eða tveimur dögum. Hann getur ekki séð um lyfin sín sjálfur.“

Fyrrum meðleikarar miður sín

Fyrrverandi meðleikarar Chase, Devon Werkheiser, Lindsey Shaw og Daniel Curtis Lee, töluðu um myndbandið í þættinum Ned’s Declassified Podcast Survival Guide þann 24. september.

„Það var mikið að vinna úr fyrir mig. Fyrst þegar ég sá myndbandið var ég reiður, því ég hugsaði með mér af hverju að setja myndavél í andlit einhvers þegar hann á í erfiðleikum? En svo, eftir að ég varð reiður út í fólkið sem var að taka upp, varð ég ósáttur við sjálfan mig því ég fann fyrir vanmætti. Mér finnst eins og ég geti ekki gert mikið,“ sagði Lee.

Shaw, sem áður barðist við fíkniefnaneyslu, viðurkenndi: „Ég hef verið í þessari stöðu.“

Leikararnir þrír hétu því að reyna að hjálpa Chase á allan mögulegan hátt.

„Já, við vonumst öll til að við getum komið Tylor á betri braut, við sjáum hvað við getum gert hér,“ sagði Daniel. „En hann kemur ekki í hlaðvarpið.“

„Það er alls ekki það sem þarf að gerast hér. Það er margt fleira sem þarf að gerast áður en það gerist,“ bætti Werkheiser við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana