

Bandaríski leikarinn Corey Feldman hefur nú algjörlega breytt sögu sinni og neitar nú að Corey Haim hafi „misnotað“ hann við tökur á mynd þeirra frá 1987, The Lost Boys.
Sjá einnig: Segir vin sinn og mótleikara hafa misnotað sig við tökur The Lost Boys
Upphaflegar athugasemdir Feldmans komu fram í heimildarmyndinni Corey Feldman vs The World sem kom út nýlega, en lögmenn leikarans segja nú að athugasemdir hans hafi verið „rangtúlkaðar“.
„Feldman kom ekki að neinu í heimildarmyndinni Corey Feldman vs The World. Framleiðendur myndarinnar gerðu hana án vitundar Feldmans og fengu myndefnið með óheiðarlegum hætti,“ sagði lögfræðiteymi Feldmans í yfirlýsingu til Page Six.
Í yfirlýsingunni stóð: „Feldman rannsakar uppruna myndefnisins, fullyrðingar um rétt framleiðandans til þess og hlutverk nafns hans, myndar og líkingar. Feldman hyggst nýta sér alla lagalega möguleika sem honum standa til boða þegar rannsókn hans lýkur.“
Feldman útskýrði enn fremur að upphafleg ummæli hans væru ætluð til að sýna að Haim hefði verið að reyna að fíflast við Feldman. Hins vegar „endurgalt Feldman ekki viðbrögð hans og hafði samband við annan aðila fyrir hönd herra Haim.“
„Yfirlýsing herra Feldman um að herra Haim hefði „misnotað“ hann vísaði til árása herra Haim, en ekki líkamlegrar misnotkunar. Myndin og allar aðrar fréttir um þetta mál afbaka sannleikann og samhengið í orðum og sögu herra Feldman. Herra Feldman fullyrðir ekki að Corey Haim hafi „misnotað“ hann líkamlega,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Feldman ítrekaði að hann væri „ekki að saka Corey Haim um að misnota mig“ og að hann hefði ekki heimilað nýju heimildarmyndina „á nokkurn hátt“ í viðbótaryfirlýsingu sem hann deildi á Instagram á laugardag.
„Ég hef verið skotmark gaslýsingar og reynt hefur verið að skaða feril minn og mannorð um langan tíma. Þið eruð klár, ég veit að þið sjáið að þetta er að gerast,“ skrifaði hann.
„Þannig að það kemur ekki á undan að þessi sami hópur er mættur og ég er málaður í fölsku ljósi. Ég lofa ykkur að eins og áður mun sannleikurinn sigra að lokum. Guð vinnur. Ástin vinnur.“

Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum vestanhafs og víðar í síðustu viku. Haim var 14 ára þegar The Lost Boys kom út árið 1987, en Feldman var 16 ára.
Eftir að ásakanir Feldman komu upp neitaði móðir Corey Haim, Judy Haim, fullyrðingum Feldman harðlega og kallaði það „enn eina lygi til að eitra fyrir fólki og halda sjálfum sér í umræðunni.“
Sjá: Móðirin brjáluð yfir ásökunum um kynferðisbrot – „Ekki séns í helvíti“
Sagði móðirin að það væri „engin leið í helvíti“ að fullyrðingar Feldman hefðu nokkurn rétt á sér þar sem sonur hennar, sem lést árið 2010 úr fylgikvillum lungnabólgu 38 ára gamall, var gagnkynhneigður og „einnar konu karlmaður“.