
Bardaginn fór fram í Miami og vann Joshua á rothöggi í sjöttu lotu.
Óvíst er hvað varð til þess að allt sauð upp úr en á myndböndum á samfélagsmiðlum má sjá Arlovski reyna að verjast nokkrum einstaklingum, þar á meðal YouTube-stjörnunni Jack Doherty.
Doherty er með 15 milljónir áskrifenda á YouTube og 2,8 milljónir fylgjenda á Instagram. Arlovski, sem er 46 ára, keppti í þungavigt í UFC og varð heimsmeistari árið 2005. Hann er sá keppandi í þungavigtarflokki UFC sem hefur unnið flesta sigra á ferli, eða 23.
The Sun segir frá því að Arlovski hafi orðið reiður þegar einhver úr hópnum rakst utan í hann baksviðs. Blandaðist Doherty inn í slagsmálin sem á eftir fylgdu. Hann virðist þó hafa tekið skynsamlegu nálgunina og haldið sig að mestu fyrir aftan öryggisverði sína. Arlovski sló á sama tíma einn úr hópnum í gólfið og sparkaði í hann.
Doherty hefur öðlast frægð fyrir umdeild prakkarastrik á undanförnum árum. Hann hefur þénað vel á YouTube-rás sinni og er talinn eiga um þrjár milljónir dala í beinhörðum peningum.
Í frétt The Sun kemur fram að samfélagsmiðlanotendur hafi furðað sig á Doherty og vinum hans að abbast upp á Arlovski.
Einn skrifaði á X: „Vita þeir yfirleitt hver Andrei er?“
Annar sagði: „Ég skil einfaldlega ekki af hverju einhver vill berjast við fyrrverandi UFC-meistara, en það er kannski bara ég.“
Þriðji bætti við: „Hann er kallaður Pitbull af ástæðu. Þessir krakkar þurfa að vita við hvern þeir eru að eiga.“
Og annar skrifaði: „Eruð þið í alvöru að fara í slagsmál við gamla UFC-meistara?? Haldið þið að þeir séu enn ekki nógu öflugir til að rota ykkur? Farið varlega.“
Jack Doherty and his crew got into a fight with former UFC heavyweight champion Andrei Arlovski at the Jake Paul fight last night
pic.twitter.com/dv8yUcbQx2— FearBuck (@FearedBuck) December 20, 2025