fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Tölvuþrjótum tókst að afrita gögn – Hafa ekki birt þau eða hótað birtingu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 12. desember 2025 20:01

Hjúkrunarheimilið Grund er eitt af Grundarheimilinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grundarheimilin hafa sent frá sér nýja tilkynningu vegna tölvuárásar á heimilin fyrr í vikunni.

Árásin fólst í því að tölvuþrjótar brutust inn á netþjóna og komust þannig inn í kerfi þar sem finna má upplýsingar um skjólstæðinga, íbúa, aðstandendur og starfsfólk Grundarheimilanna.

Sjá einnig: Tölvuárás á Grundarheimilin

Í tilkynningu sem Grundarheimilin sendu frá sér nú í kvöld kemur fram að búið er að loka fyrir aðgang tölvuþrjótanna og ljóst þykir að engum gögnum eða upplýsingum hefur verið eytt eða þeim  breytt.

„Heimilin hafa áfram fullan aðgang að öllum upplýsingum sem kerfin innihalda og árásin hefur því takmörkuð áhrif haft á þá þjónustu sem heimilin veita íbúum og skjólstæðingum.“

Rannsókn hefur leitt í ljós að áður en að tölvuárásin uppgötvaðist, tókst tölvuþrjótunum að afrita hluta af þeim persónuupplýsingum sem finna mátti í kerfum heimilanna, s.s. heilsufarsupplýsingar sem tengjast umönnun og veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum.“

Ekkert bendir til þess að þessar upplýsingar hafi verið birtar og tölvuþrjótarnir hafa ekki hótað slíkri birtingu. Rannsókn árásarinnar stendur enn yfir með aðstoð færustu sérfræðinga landsins á þessu sviði.

„Í ljósi viðkvæms eðlis þessara upplýsinga eru skjólstæðingar, íbúar, aðstandendur og starfsmenn Grundar hvattir til að vera á varðbergi gagnvart mögulegri misnotkun á upplýsingunum af hálfu tölvuþrjótanna. Ef grunur vaknar um slíka misnotkun þá skal gæta fyllstu varúðar í samskiptum, bregðast ekki við heldur tilkynna það til CERT-IS netöryggissveitarinnar. Rétt er að árétta að Grundarheimilin munu ekki senda út neina pósta að fyrra bragði þar sem fólk er beðið um að senda upplýsingar eða ýta á hlekki.“

Tilkynnt hefur verið um árásina til Persónuverndar, Landlæknis og CERT-IS netöryggissveitarinnar í samræmi við það sem áskilið er í lögum og starfsleyfi heimilanna. Einnig er verið að undirbúa kæru til lögregluyfirvalda.

„Grundarheimilin munu ræða við alla íbúa og hafa verið sendar sérstakar tilkynningar til starfsfólks, skjólstæðinga, íbúa og  aðstandenda eftir því sem mögulegt er. Þá hefur fólki verið boðið að hafa samband beint með spurningar sem kunna að vakna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Í gær

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon