fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Margeir og Kitty til liðs við KAPP

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 12. desember 2025 14:38

Margeir Ásgeirsson tekur við stöðu fjármálstjóra KAPP samstæðunnar og Kitty Liu tekur við stöðu forstöðukonu fjármála fyrir dótturfélag KAPP í Bandaríkjunum, KAMI Tech Inc.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstur KAPP hefur vaxið mjög á árinu og hefur félagið styrkt fjármáladeild sína með ráðningu á tveimur öflugum einstaklingum sem taka stöðu á fjármálasviði félagsins. 

Margeir Ásgeirsson tekur við stöðu fjármálastjóra KAPP samstæðunnar og mun stýra fjármálum samstæðunnar á Íslandi, Bandaríkjunum og Noregi. Á sama tíma tekur Kitty Liu við stöðu forstöðukonu fjármála fyrir dótturfélag KAPP í Bandaríkjunum, KAMI Tech Inc.

Margeir kemur til KAPP frá Marel, þar sem hann hefur starfað frá árinu 2018, fyrst í stefnumótun og yfirtökum en síðar sem fjármálastjóri fiskiðnaðar. Á árunum 2012-2018 starfaði Margeir hjá Kviku banka við fyrirtækjaráðgjöf. Kitty kemur einnig til KAPP frá Marel í Bandaríkjunum, þar sem hún hefur starfað síðan 2014 á fjármálasviði en þar áður hjá Pacific Cornetta Inc.

KAPP er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi, kjúklingaframleiðslu, smávöruverslanir og annan iðnað. Vöruflóra félagsins hefur vaxið ört síðustu misseri með tilkomu nýrra lausna sem áður voru í eigu Skagans 3X, RAF og KAMI Tech.

„Ég er ánægður að fá þau Margeir og Kitty til liðs við KAPP. Þau hafa bæði víðtæka reynslu og hæfni á sviði fjármála og reksturs sem mun styrkja fyrirtækið enn frekar. Vöxtur félagsins á líðandi rekstrarári hefur verið hraður og við sjáum enn frekari tækifæri til vaxtar á komandi árum. Það er því mikill liðsstyrkur fyrir okkur að fá jafn öfluga einstaklinga til liðs við okkur eins og þau Margeir og Kitty. Bæði þekki ég frá fyrra starfi og veit yfir hvaða reynslu og kröftum þau búa. Það er okkur mikils virði að hafa öflugt teymi starfsmanna á öllum starfsstöðvum,“ segir Ólafur Karl Sigurðarson, aðstoðarforstjóri KAPP.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“

Vilhjálmur mjög ósáttur við Sigurjón: „Þetta er ein ósmekklegasta færsla sem ég hef séð lengi“
Fréttir
Í gær

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“

Baldvin hefur áhyggjur af því að móðir hans kemur heim í dag – „Allir benda hver á annan“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon