

Matvælastofnun (MAST) hefur krafist þess að hundurinn Úlfgrímur, kallaður Úffi, verði aflífaður vegna slæms heilsufars. Eigandi Úffa hefur vakið athygli á málinu og furðar sig á framgöngu stofnunarinnar enda eigi hann nóg eftir þrátt fyrir aldur. Úffi er tíu ára og glímir við gigt. Hann er þó duglegur að hreyfa sig og er í viðeigandi meðferð. Eigandinn telur að MAST sé að misbeita valdi í málinu.
Sjá einnig: MAST krefst þess að hundur Margrétar verði aflífaður – „Þetta er bara valdníðsla og lyktar af einelti“
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, vakti athygli á máli Úffa á Alþingi í dag, en Kolbrún segist hafa verulegar áhyggjur af framgöngu MAST í málinu.
„Það sem hefur komið fram í fréttum vegna Úlfgríms hefur vissulega að mestu verið frá annarri hlið málsins. Hins vegar hafa bréf vegna málsins frá MAST verið birt. Það setur að manni smá hroll að lesa þau bréf. Finnst harkalega gengið fram og gefinn stuttur fyrirvari í svo afdrifaríka aðgerð sem aflífun dýrs er.“
Vissulega var eiganda boðinn andmælaréttur en samt er eins og MAST hafi í raun þegar tekið endanlega ákvörðun um að þessum heimilishundi, sem vel fer um á heimili eigandans, skuli lógað. Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan, reiði og hugarangri. Hér er um að ræða dýr sem engan hefur skaðað nema síður sé því hann bjargaði eiganda sínum úr eldsvoða fyrir skemmstu.“
Kolbrún bendir á að eigandi Úffa hafi mótmælt því að hundurinn búi við skert lífsgæði. Hann sé vissulega orðinn 10 ára gamall en sé þó í eftirliti hjá dýralæknum og í meðferð við gigt. Fyrirhugað sé nú að senda Úffa í vatnsmeðferð til að létta enn frekar undir með gigtina.
„Úffi er sem sagt bara ósköp venjulegur heimilishundur, sem nýtur þess enn að leika sér að bolta, fer reglulega út að ganga, borðar og hefur eðlilega meltingarstarfsemi.
Að lokum vil ég segja að ég tel MAST vinna margt mjög gott og þakka fyrir að virkt eftirlit sé með dýrum í landinu. En stofnanir verða líka að sýna mannúð og þar má gera betur. Í öllum verkum þarf að sýna mennsku og engin regla er án undantekningar.
Ég vona í hjarta mínu að þetta mál og önnur sambærileg fái farsælan endi bæði fyrir eiganda Úffa og hann sjálfan.“