fbpx
Föstudagur 28.nóvember 2025
Fréttir

Úlfar afar harðorður um ástandið í lögreglunni – Hugleiðir að sækja um sem ríkislögreglustjóri

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. nóvember 2025 20:33

Úlfar Lúðvíksson. Mynd: Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum hafi farið yfir víðan völl og verið afar harðorður í viðtali við RÚV. Segir Úlfar ástandið innan lögreglunnar hér á landi ekki vera gott, spilling viðgangist innan hennar og hann hugleiði að sækja um embætti ríkislögreglustjóra.

Í viðtalinu  gerir Úlfar upp umdeild starfslok sín en hann óskaði eftir að hætta strax þegar honum var tilkynnt að staða hans á Suðurnesjum yrði auglýst en fimm ára skipunartími hans ekki framlengdur. Hann segist standa við ákvörðun sína en rekur ákvörðun dómsmálaráðherra um að framlengja ekki skipunartímann til deilna hans við Haul Guðmundsson ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu, sem nú hefur látið af því starfi.

Nú verður embætti ríkislögreglustjóra auglýst laust til umsóknar eftir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir vék úr embættinu og segist Úlfar vera að hugleiða að sækja um.

Úlfar segir ljóst að öll þau mál sem hafa komið upp innan lögreglunnar og saksóknaraembætta landsins að undanförnu ekki koma vel út fyrir þessar stofnanir. Nefnir hann þar meðal annars mál Karl Inga Vilbergssonar saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara sem var handtekinn fyrr á þessu ári og gisti fangageymslur yfir nótt. Upplýsa þurfi það mál betur en ef Karl Ingi vilji ekki gangast undir sekt verði að taka ákvörðun um hvort eigi ekki að ákæra hann.

Spilling

Hann segir mál lögreglumanns sem grunaður er um að hafa stundað njósnir fyrir aðila á vegum Björgólfs Thors Björgólfssonar, í vinnutímanum og notað til þess lögreglumótórhjól sýni að spilling viðgangist innan lögreglunnar.

Úlfar greinir líka frá því að aðili innan lögreglunnar á Suðurnesjum hafi í hans tíð þar útvegað lögmanni nöfn lögreglumanna. Lögmaðurinn hafi verið að vinna fyrir hóp útlendinga og haft í kjölfarið uppi óbeinar hótanir í garð lögreglumanna. Þetta hafi lögmaðurinn gert fyrir glæpamenn en hvort um er að ræða sama lögmann og er nú í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðkomu að skipulagðri glæpastarfsemi og innflutningi á fólki  segist Úlfar ekki vita það.

Úlfar gagnrýnir ýmislegt fleira í viðtalinu. Hann gagnrýnir greiningardeild ríkislögreglustjóra fyrir óljósar upplýsingar um fjölda glæpahópa á Íslandi, í skýrslum deildarinnar séu fullyrðingar sem hann hafi engar upplýsingar fengið um í sínum störfum. Eftirlit með fíkniefnainnflutningi væri alls ekki nægilegt og búnaður til þess ófullnægjandi.

Segir hann að vantraust hafi lengi ríkt milli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra og það sé afar slæmt. Farsælast væri að einn ríkislögreglustjóri yrði yfir öllu landinu og fjórir lögreglustjórar undir honum, hver í sínum landshluta. Um leið þurfi að koma á fót sjálfstæðri stofnun sem hefði eftirlit með störfum lögreglu og stórefla þyrfti innra gæðaeftirlit hjá lögreglunni. Full þörf væri á þessu. Það bæru atburðir síðustu missera vott um.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Helgi segir Samhjálp vera góða nágranna – „Aumingi er sá sem níðist á þeim sem eru minni máttar“

Helgi segir Samhjálp vera góða nágranna – „Aumingi er sá sem níðist á þeim sem eru minni máttar“
Fréttir
Í gær

Viðsnúningur í Saurbæjarprestkallsmálinu – Séra Kristinn mátti ekki reikna með að boð um nýtt embætti stæði enn

Viðsnúningur í Saurbæjarprestkallsmálinu – Séra Kristinn mátti ekki reikna með að boð um nýtt embætti stæði enn
Fréttir
Í gær

Vitor fékk þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot

Vitor fékk þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot
Fréttir
Í gær

Inga gefur lítið fyrir blammeringar Einars – „Þetta er rangt“

Inga gefur lítið fyrir blammeringar Einars – „Þetta er rangt“