fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fókus

„Risa högg“ fyrir Kim Kardashian – Leikkonan stal senunni

Fókus
Þriðjudaginn 8. júlí 2025 10:20

Myndir frá brúðkaupshelginni. Myndir/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Sydney Sweeney vakti mikla athygli í brúðkaupi auðkýfingsins og standanda Amazon, Jeff Bezos, og fjölmiðlakonunnar, Lauren Sánchez, á Ítalíu í lok júní.

Samkvæmt heimildum National Enquirer var erfitt fyrir raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian að Sydney hafi verið miðpunktur athyglinnar en ekki hún.

„Kim myndi aldrei segja þetta, en að sjá Sydney fá alla athyglina í Feneyjum var risa högg fyrir sjálfsálit hennar,“ sagði heimildarmaðurinn.

Sydney á leið í brúðkaupið. Mynd/Getty Images

Einnig er greint frá því að Kim var spennt að eyða tíma með fyrrverandi NFL-kappanum Tom Brady í brúðkaupinu, en þau hafa daðrað við hvort annað í gegnum árin.

Sjá einnig: Sjóðandi heitt daður milli Kim Kardashian og Tom Brady vekur athygli

„Hún er ennþá skotin í honum,“ sagði heimildarmaðurinn, en Tom „veitti Sydney miklu meiri athygli og Kim fannst hún nánast ósýnileg.“

Tom Brady og félagar sparka 15 leikmönnum út - Willum og Alfons verða áfram  - DV
Tom Brady. Mynd/Getty Images

TMZ greindi frá því í lok júní að Tom og Sydney voru saman fram á nótt, dönsuðu og spjölluðu saman.

En Kim kennir ekki Sydney um þetta og finnst leikkonan „glæsileg og hæfileikarík“ að sögn heimildarmannsins.

„Þetta snýst meira um að Kim er að átta sig á því að hún er ekki aðalgellan lengur, og það veldur henni óöryggi. Hún hefur verið einhleyp í nokkur ár núna og það er byrjað að hafa áhrif á sjálfstraust hennar. Hún er glæsileg, en hún er á fimmtugsaldri, á fjögur börn og hefur áhyggjur að það sé of stór pakki fyrir hvernig karlmann hún vill.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Ragnhildur segir að við viljum ekki vera þessi týpa

Ragnhildur segir að við viljum ekki vera þessi týpa
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jennifer og Ben taka óvænta ákvörðun ári eftir skilnað

Jennifer og Ben taka óvænta ákvörðun ári eftir skilnað