fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
433Sport

Mikael biður Halldór að halda kjafti – „Á að rétta honum umslag“

433
Miðvikudaginn 25. júní 2025 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikael Nikulásson sérfræðingi Þungavigtarinnar blöskraði hvernig Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks talaði eftir 1-1 jafntefli gegn Fram í fyrradag.

Halldór lét hafa eftir sér að Fram hefði verið með varnarmaúr og sparkað langt, liðið hefði þá spilað ansi fast gegn sínum mönnum.

„Þetta er eitt slakasta viðtal sem ég hef séð, Blikar komust yfir í Vestmannaeyjum fyrir nokkrum dögum og voru svo í vörn. Þetta er diss á Framarana, Dóri á að koma í viðtal eftir leik og þakka dómaranum fyrir stigið,“ sagði Mikael í þættinum.

Blikar fengu umdeilda vítaspyrnu í uppbótartíma þar sem Arnar Þór Stefánsson dómari leiksins benti á punktinn.

„Hann gerir ekkert nema að skjóta á Framarana, þetta var bara djók. Ég ætla ekki að væna strákinn um henda sér niður, hann bara hitir ekki boltann,“ sagði Mikael en Ágúst Orri Þorsteinsson féll þá í teignum hjá Fram.

„Hann var beint fyrir framan þetta, hann gaf Breiðablik stigið. Dóri á að vera á fundi með honum núna og rétta honum umslag en halda kjafti með eitthvað svona. Hættu að skjóta á andstæðingana.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Allt á leið í apaskít – Gyokeres hringdi í forsetann og neitar að mæta til æfinga

Allt á leið í apaskít – Gyokeres hringdi í forsetann og neitar að mæta til æfinga
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Valgeir birtir myndband af hálstakinu sem hann varð fyrir og spyr – „Hvað er þetta þá?“

Valgeir birtir myndband af hálstakinu sem hann varð fyrir og spyr – „Hvað er þetta þá?“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Risatilboði Newcastle í Elanga hafnað

Risatilboði Newcastle í Elanga hafnað
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ísland mætir Finnlandi á morgun

Ísland mætir Finnlandi á morgun
433Sport
Í gær

Andrews og Björn reknir frá Víkingi

Andrews og Björn reknir frá Víkingi
433Sport
Í gær

Baldvin ekki fengið greitt og neitar að mæta til vinnu

Baldvin ekki fengið greitt og neitar að mæta til vinnu