

Stjarnan 2 – 1 Víkingur R.
0-1 Karl Friðleifur Gunnarsson(’60)
1-1 Óskar Örn Hauksson(’63)
2-1 Daníel Laxdal(’71)
Breiðablik er Íslandsmeistari karla árið 2022 eftir leik Stjörnunnar og Víkings sem fór fram á Samsung vellinum í kvöld.
Rúmlega 600 manns voru mættir til að sjá Stjörnuna vinna 2-1 heimasigur eftir að hafa lent 1-0 undir.
Karl Friðleifur Gunnarsson kom Víkingum yfir á 60. mínútu en Óskar Örn Hauksson og Daníel Laxdal tryggðu Stjörnunni sigur.
Úrslitin þýða að Breiðablik er á toppi deildarinnar með 57 stig, 11 stigum á undan bæði Víkingum og KA þegar þrjár umferðir eru eftir.
Það er því ekki möguleiki fyrir hin liðin að ná Blikum sem hafa verið besta lið mótsins í sumar.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í úrvalsdeild í heil 12 ár.