
Viðtal sem Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, veitti Viaplay eftir leikinn gegn Arsenal í gær hefur vakið mikla athygli. Þýski stjórinn þykir afar einlægur í viðtalinu.
Liverpool tapaði gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær, 3-2. Liðið hefur farið afleitlega af stað á leiktíðinni og er með tíu stig eftir átta leiki. Um næstu helgi mætir Liverpool Manchester City, sem verður allt annað en auðvelt verkefni.
Miðað við viðtalið sem fyrrum leikmaðurinn Jan Åge Fjørtoft á Viaplay tók við Klopp eftir leik virðist Klopp ansi skúffaður yfir stöðunni. Hann er þó einlægur í svörum og fer ekki í felur með neitt.
Þetta áhugaverða viðtal Klopp eftir leik gærdagsins má sjá hér að neðan.
Jurgen Klopp talking to @JanAageFjortoft here. He looks very down, understandably. Managers are always so relaxed with Jan and this interview is well worth a watch #LFC pic.twitter.com/Dh292hfHdf
— Kevin Palmer (@RealKevinPalmer) October 9, 2022