Lið Burnley elskar að vinna óvænta sigra en liðið mætti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Burnley vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu og lyfti sér upp í 13. sæti deildarinnar með sigrinum.
Jóhann Berg Guðmundsson lék með Burnley í leiknum en hann kom inná sem varamaður.
Jói Berg spilaði stórt hlutverk í að hjálpa Burnley að vinna en hann lagði upp sigurmark liðsins.
Íslenski landsliðsmaðurinn átti frábæran sprett og gaf svo boltann á Ashley Barnes sem skoraði.
Markið má sjá hér.
Barnes goal ~~~#BURTOT
BUR 2 – 1 TOT pic.twitter.com/scVYOW6ipJ— IT’S ALL ABOUT FOOTBALL (@FootballNewsLve) 23 February 2019