fbpx
Þriðjudagur 26.ágúst 2025
433

Heimir: Við báðum leikmenn um að halda sér í standi

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 17. febrúar 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjátrú og trú tengist mikið inn í íþróttir og í Bandaríkjunum eru mörg dæmi þess að íþróttafólk telji að trú sín á guð hjálpi mikið til. Sú hefð er ekki eins rík á okkar ástkæra Íslandi en nokkrir íþróttamenn trúa þó á guð en kannski ekki á hjálp hans í keppni. Hjátrú er einnig stór hluti af íþróttum og margir sem nýta sér það og telja það hjálpa sér í leik og starfi. DV fékk nokkra af okkur fremstu íþróttamönnum til að svara spurningum um hjátrú og trú.

##Arnar Pétursson - Íslandsmeistari í hlaupum##Ertu hjátrúarfullur?Nei, ég hef enga hjátrú. Var um tímabil alltaf í sömu sokkunum þegar ég var yngri en svo urðu þeir ónýtir og það kom ekkert í staðinn.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég er alls ekki trúaður og væri mjög mikið til í að Ísland yrði fyrsta almennilega trúlausa land í heiminum. Að sama skapi væri ég virkilega til í að vera trúaður því ég held maður geti sótt ótrúlegan innri styrk með því að trúa á eitthvað stærra en maður sjálfur, því miður er bara ekkert sem hefur látið mig halda að Guð sé til.
##Arnar Pétursson – Íslandsmeistari í hlaupum##Ertu hjátrúarfullur?Nei, ég hef enga hjátrú. Var um tímabil alltaf í sömu sokkunum þegar ég var yngri en svo urðu þeir ónýtir og það kom ekkert í staðinn.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég er alls ekki trúaður og væri mjög mikið til í að Ísland yrði fyrsta almennilega trúlausa land í heiminum. Að sama skapi væri ég virkilega til í að vera trúaður því ég held maður geti sótt ótrúlegan innri styrk með því að trúa á eitthvað stærra en maður sjálfur, því miður er bara ekkert sem hefur látið mig halda að Guð sé til.
##Andri Rúnar Bjarnason - Landsliðsmaður í knattspyrnu##Ertu hjátrúarfullur?Ég hef enga hjátrú eða neitt þess konar.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi ekki á guð. Ég gerði það þegar ég var yngri en eftir því sem vísindin urðu öflugri og við fengum fleiri svör því minni varð trú mín.
##Andri Rúnar Bjarnason – Landsliðsmaður í knattspyrnu##Ertu hjátrúarfullur?Ég hef enga hjátrú eða neitt þess konar.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi ekki á guð. Ég gerði það þegar ég var yngri en eftir því sem vísindin urðu öflugri og við fengum fleiri svör því minni varð trú mín.
##Valdís Þóra Jónsdóttir - Atvinnukylfingur##Ertu hjátrúarfull?Ég hef ekki beint hjátrú þannig séð en er með rútínu sem er alltaf sú sama áður en ég fer út á völl.##Ertu trúuð og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi ekki beint á guð en ég trúi á að það sé eitthvað annað sem tekur á móti manni þegar maður deyr.
##Valdís Þóra Jónsdóttir – Atvinnukylfingur##Ertu hjátrúarfull?Ég hef ekki beint hjátrú þannig séð en er með rútínu sem er alltaf sú sama áður en ég fer út á völl.##Ertu trúuð og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi ekki beint á guð en ég trúi á að það sé eitthvað annað sem tekur á móti manni þegar maður deyr.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

##Júlían J. K. Jóhannsson - Kraftlyftingamaður##Ertu hjátrúarfullur?Ég ekki með neina sérstaka hjátrú fyrir mót hjá mér en auðvitað ýmsar reglur sem ég set mér og sá reglurammi þrengist þegar nær dregur móti. En ég hef reynt að þjálfa mig í því að æfa og keppa við fjölbreyttar aðstæður svo ég sé undir sem flest búinn. Til að bæta aðeins við þá hefur það gerst tvisvar að ég hef borðað hangikjöt með uppstúf o.s.frv. kvöldið fyrir mót og á þeim mótum hefur mér gengið mjög vel en það hefur ekki orðið að neinni hjátrú hjá mér enn.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég get nú ekki sagt að ég sé trúaður en ég hef séð marga trúaða keppa í minni íþrótt og stundum er engu líkara en það hjálpi þeim. Kannski að það sé málið.
##Júlían J. K. Jóhannsson – Kraftlyftingamaður##Ertu hjátrúarfullur?Ég ekki með neina sérstaka hjátrú fyrir mót hjá mér en auðvitað ýmsar reglur sem ég set mér og sá reglurammi þrengist þegar nær dregur móti. En ég hef reynt að þjálfa mig í því að æfa og keppa við fjölbreyttar aðstæður svo ég sé undir sem flest búinn. Til að bæta aðeins við þá hefur það gerst tvisvar að ég hef borðað hangikjöt með uppstúf o.s.frv. kvöldið fyrir mót og á þeim mótum hefur mér gengið mjög vel en það hefur ekki orðið að neinni hjátrú hjá mér enn.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég get nú ekki sagt að ég sé trúaður en ég hef séð marga trúaða keppa í minni íþrótt og stundum er engu líkara en það hjálpi þeim. Kannski að það sé málið.
##Glódís Perla Viggósdóttir - Landsliðskona í knattspyrnu##Ertu hjátrúarfull?Ég er ekki með neina hjátrú fyrir æfingar né leiki. Var hins vegar þegar ég var yngri með hjátrú um að ég þyrfti að fara í hægri skóinn á undan vinstri og eitthvað svona týpískt fyrir leiki. ##Ertu trúuð og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég veit í raun ekki alveg hverju ég trúi og er því ekki viss um hvort ég trúi á guð eða ekki. Ég trúi að það sé eitthvað æðra okkur en trúi ekki endilega að það hafi einhvern mátt eða áhrif á okkar veruleika heldur sé frekar einhvers konar ró sem við getum leitað til og sé eins konar ljós í myrkri.
##Glódís Perla Viggósdóttir – Landsliðskona í knattspyrnu##Ertu hjátrúarfull?Ég er ekki með neina hjátrú fyrir æfingar né leiki. Var hins vegar þegar ég var yngri með hjátrú um að ég þyrfti að fara í hægri skóinn á undan vinstri og eitthvað svona týpískt fyrir leiki. ##Ertu trúuð og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég veit í raun ekki alveg hverju ég trúi og er því ekki viss um hvort ég trúi á guð eða ekki. Ég trúi að það sé eitthvað æðra okkur en trúi ekki endilega að það hafi einhvern mátt eða áhrif á okkar veruleika heldur sé frekar einhvers konar ró sem við getum leitað til og sé eins konar ljós í myrkri.
##Kristófer Acox - Landsliðsmaður í körfubolta##Ertu hjátrúarfullur?Ég held ég geti sagt að ég sé með tvær. Ég sit alltaf á sama stað á vídeófundum daginn fyrir leik og æfi einnig alltaf í vissu skópari daginn fyrir leik. ##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég myndi ekki segja að ég trúi á guð, en trúi á að mínir nánustu sem hafa fallið frá vaki yfir mér og ég „bið„ eða tala t.a.m. alltaf við hana ömmu mína sálugu rétt fyrir leik. Er bara ekki alinn upp við mikla trú og held að það sé meginástæða þess að ég er ekki trúaður.
##Kristófer Acox – Landsliðsmaður í körfubolta##Ertu hjátrúarfullur?Ég held ég geti sagt að ég sé með tvær. Ég sit alltaf á sama stað á vídeófundum daginn fyrir leik og æfi einnig alltaf í vissu skópari daginn fyrir leik. ##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég myndi ekki segja að ég trúi á guð, en trúi á að mínir nánustu sem hafa fallið frá vaki yfir mér og ég „bið„ eða tala t.a.m. alltaf við hana ömmu mína sálugu rétt fyrir leik. Er bara ekki alinn upp við mikla trú og held að það sé meginástæða þess að ég er ekki trúaður.
##Hjörvar Steinn Grétarsson - Stórmeistari í skák##Ertu hjátrúarfullur?Ég er almennt ekki hjátrúarfullur en ég viðurkenni að það eru nokkrir hlutir sem ég geri almennt þegar ég tefli á mótum. Ég borða yfirleitt sama matinn fyrir mót og til þess að skrifa skákirnar (það er eitt af því sem skákmenn þurfa alltaf að gera í lengri skákum) nota ég yfirleitt sama pennann. Frá því að ég byrjaði að tefla hef ég ætíð teflt skólaus en það er byggt á hugmyndum um þægindi fremur en einhvers konar hjátrú. Ég myndi segja að eina hjátrú mín væri tengd pennanotkun. Ef ég þarf virkilega að komast í tæri við minn innri keppnismann þá hlusta ég á rapp fyrir skákina. Helst „old school“ Tupac.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi á Guð. Móðir mín fór reglulega með bænir með mér á kvöldin þegar ég var yngri. Ég myndi seint teljast strangtrúaður en grundvöllur trúar minnar er sú afstaða að það sé eitthvað æðra en maðurinn. Allir afreksmenn hafa gengið í gegnum erfiðleika og ég myndi segja að trúin hjálpi manni að komast í gegnum þá þótt ég telji að almennt sé góður stuðningur fjölskyldu og vina langtum mikilvægari.
##Hjörvar Steinn Grétarsson – Stórmeistari í skák##Ertu hjátrúarfullur?Ég er almennt ekki hjátrúarfullur en ég viðurkenni að það eru nokkrir hlutir sem ég geri almennt þegar ég tefli á mótum. Ég borða yfirleitt sama matinn fyrir mót og til þess að skrifa skákirnar (það er eitt af því sem skákmenn þurfa alltaf að gera í lengri skákum) nota ég yfirleitt sama pennann. Frá því að ég byrjaði að tefla hef ég ætíð teflt skólaus en það er byggt á hugmyndum um þægindi fremur en einhvers konar hjátrú. Ég myndi segja að eina hjátrú mín væri tengd pennanotkun. Ef ég þarf virkilega að komast í tæri við minn innri keppnismann þá hlusta ég á rapp fyrir skákina. Helst „old school“ Tupac.##Ertu trúaður og ef svo er hjálpar trúin þér í íþróttum?Ég trúi á Guð. Móðir mín fór reglulega með bænir með mér á kvöldin þegar ég var yngri. Ég myndi seint teljast strangtrúaður en grundvöllur trúar minnar er sú afstaða að það sé eitthvað æðra en maðurinn. Allir afreksmenn hafa gengið í gegnum erfiðleika og ég myndi segja að trúin hjálpi manni að komast í gegnum þá þótt ég telji að almennt sé góður stuðningur fjölskyldu og vina langtum mikilvægari.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin – Vinna deildina með naumindum

Ofurtölvan stokkar spilin – Vinna deildina með naumindum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mínútu þögn í Vesturbæ fyrir níu ára strákinn sem lést í síðustu viku

Mínútu þögn í Vesturbæ fyrir níu ára strákinn sem lést í síðustu viku
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hjörvar hafði ekki gaman af því að láta hlæja að sér á meðan hann horfði á sjónvarpið

Hjörvar hafði ekki gaman af því að láta hlæja að sér á meðan hann horfði á sjónvarpið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Brighton fjárfestir í byltingarkenndri tækni – Leikmenn með hátalara á bakinu á æfingum

Brighton fjárfestir í byltingarkenndri tækni – Leikmenn með hátalara á bakinu á æfingum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lamine Yamal frumsýnir nýja kærustu – Er sjö árum eldri en hann

Lamine Yamal frumsýnir nýja kærustu – Er sjö árum eldri en hann
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu markið – 16 ára og tryggði Liverpool sigur seint í uppbótartíma

Sjáðu markið – 16 ára og tryggði Liverpool sigur seint í uppbótartíma
433Sport
Í gær

City ekki komið langt í viðræðum um Donnarumma – Vilja ekki missa Ederson

City ekki komið langt í viðræðum um Donnarumma – Vilja ekki missa Ederson
433Sport
Í gær

Gæti hetjan á Ísafirði horfið á braut í haust? – „Stokkurinn er hár núna“

Gæti hetjan á Ísafirði horfið á braut í haust? – „Stokkurinn er hár núna“