

Óskað var eftir aðstoð sjúkraliðs og lögreglu á sjöunda tímanum á mánudagsmorgun vegna karlmanns sem var meðvitundarlítill sökum mikillar neyslu ávana- og fíkniefna. Í dagbók lögreglu kemur fram að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi, en þegar þangað var komið brást hann illa við. Kallað var á frekari aðstoð lögreglu á meðan maðurinn náði áttum.